Viltu byrja að æfa núna og fá að keppa á Andrésarleikunum? Andrésarskólinn opnar

Andrésarskólinn auglýsir 

SKA býður nýjum krökkum að koma og byrja að æfa snjóbretti, gönguskíði eða alpagreinar - og fá að keppa á Andrésarleikunum þegartímabilinu lýkur. Upplagt fyrir krakka sem hafa verið að prófa sig aðeins áfram í vetur og hafa farið á skíði eða snjóbretti, byrjendur eru að sjálfsögðu líka velkomnir! 

Skráning fer fram í gegnum Sportabler appinu - Andrésarskólinn kostar 18.000 krónur en þá er innifalið kort í fjallið út tímabilið (ef þarf), æfingar sem eftir eru fram að Andrés og keppnisgjaldið á Andrés. Ef börnin eiga nú þegar árskort dregst það EKKI frá gjaldinu. Í Sportabler appinu er hægt að ganga frá greiðslu og nýta frístundastyrk ef fólk vill. 

Æfingatímar eru auglýstir hér á þessari síðu. 

Öll samskipti við þjálfara og tilkynningar um hvort æfingar falli niður eða ef einhverjar breytingar verða eru í Sportabler. Þjálfarar er líka í samskiptum á Facebook síðum deildanna - á meðan að við erum að tryggja að allir séu komnir inn í Sportabler. 

Facebooksíða og upplýsingasíða alpagreina 8 ára og yngri - Upplýsingar um eldri flokka á www.skidi.is 

Facebooksíða og upplýsingasíða snjóbretta - allur aldur. 

Facebooksíða skíðagöngu og upplýsingasíða - allur aldur. 

Það má líka setja sig í samband við eftirfarandi aðila sem gefa góðfúslega upplýsingar um æfingar hjá SKA. 

Margó - snjóbretti - 8694021

Óli - skíðaganga - 8617692

Sólrún - alpagreinar - 8651363

Hlökkum til að sjá sem flesta 

SKA