.
Til þín sem hefur staðið á skíðum í Hlíðarfjalli.
Til þín sem ólst upp við suð í lyftunum, kuldabit í kinnum og gleðina við fyrstu beygjuna.
Til þín sem kepptir, æfðir, hjálpaðir, horfðir á eða bara upplifðir fjallið sem hluta af sjálfum þér.
Skíðafélag Akureyrar er meira en félag.
Það er saga. Það er samfélag. Það er hjarta sem slær í takt við fjallið.
SKA er rekið af öflugum sjálfboðaliðum og styrkjum frá nærsamfélaginu — fólki eins og þér. Í gegnum árin hefur félagið verið ríkt af sterkum félagsmönnum sem hafa lagt sitt af mörkum, oft hljóðlega, en alltaf af heilum hug. Þeir eru og hafa alltaf verið hjarta félagsins.
Í litla Akureyrska samfélaginu okkar tengjast einhvern veginn allir fjallinu á einn eða annan hátt. Fjallið sameinar kynslóðir, mótar minningar og kveikir drauma. Nú stöndum við á tímamótum.
Iðkendafjöldi hefur aldrei verið meiri. Áhugi, metnaður og kraftur eru alls staðar. Það er ljóst að Skíðafélag Akureyrar stefnir hátt — draumarnir eru stórir og framtíðin björt. En enginn nær langt einn.
Okkur vantar fleiri á bak við okkur.
Fleiri sem vilja styðja við meðbyrinn sem við erum í.
Fleiri sem vilja vera hluti af þessu ferðalagi.
Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið — alla sem bera taugar til SKA, fjallsins og skíðamenningarinnar á Akureyri — til að gerast félagsmenn í Skíðafélagi Akureyrar. Með því styrkirðu beint það frábæra starf sem unnið er, börn, ungmenni, iðkendur, þjálfara og sjálfboðaliða sem halda þessu öllu gangandi.
Þetta er okkar félag.
Þetta er okkar fjall.
Og framtíðin byggist á fólkinu sem stendur saman.
Takið stöðuna á fólkinu sem deila minningunum með ykkur og hjálpumst að við að búa til öflugan hóp félagsmanna.
Hægt er að skanna QR kóðann á myndinni hér að ofan og mun hann leiða þig áfram.
Með von um góðar viðtökur.
pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.