Úthlutað úr styrktarsjóði Óðins Áranasonar

Styrktarsjóður Óðins Árnasonar afhenti styrki þann 31. desember og fór styrkúthlutunin fram í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þetta var í annað sinn sem sjóðurinn veitir styrki. Styrktarsjóður Óðins Árnasonar var stofnaður af SKA með gjafafé frá velunnurum skíðaíþróttarinnar sem vildu minnast Óðins og hans framlags til skíðaíþróttarinnar á Akureyri. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans að styrkja afreksiðkendur SKA. Miðað er við að styrkþegar séu landsliðsfólk og/eða taki þátt í alþjóðlegum verkefnum.


Tveir iðkendur SKA hlutu styrk að þessu sinni:


 Gígja Björnsdóttir B-landsliðskona í skíðagöngu. Gígja æfir í Lillehammer í Noregi þar sem hún stundar einnig háskólanám.
 Katla Björg Dagbjartsdóttir A-landsliðskona í alpagreinum. Katla æfir og keppir með alþjóðlega skíðaliðinu Lowlanders, með bækistöðvar í Lofer í Austurríki.

Við óskum þeim velfarnaðar á nýju ári 

Stjórn Styrktarsjóðs Óðins Árnasonar