.
Í dag hófst Skíðamót Íslands í alpagreinum í Hlíðarfjalli eins og ætti ekki að hafa farið framhjá nokkrum manni.
Keppt var í svigi í Norðurbakka og voru aðstæður til skíðaiðkunar góðar, þrátt fyrir að lognið hafi verið að flýta sér.
Keppt var sem fyrr í Karla- og Kvennaflokki sem og í flokki U18-KK og U18-KVK.
66°Norður veittu aukaverðlaun fyrir sigurvegara allra flokka og Fjallið veitti aukaverðlaun fyrir 2. og 3. sæti í Karla- og Kvennaflokki sem og útdráttarverðlaun.
Úrslit mótsins má nálgast á Mótaskrá SKÍ
Hér að neðan eru myndir frá verðlaunaafhendingu dagsins en það var Barði Westin sem tók myndirnar.

Flokkur U18-KVK
1. Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir (UÍA)
2. Viktoría Björk Harðardóttir (BBL)
3. Katrín María Jóndóttir (UÍA)

Kvennaflokkur
1. Þórdís Helga Grétarsdóttir (VÍK)
2. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)
3. Eyrún Erla Gestsdóttir (VÍK)

Flokkur U18-KK
1. Óskar Valdimar Sveinsson (DAL)
2. Kári Freyr Orrason (ÁRM)
3. Hrafnkell Gauti Brjánsson (ÁRM)

Karlaflokkur
1. Gauti Guðmundsson (KR)
2. Matthías Kristinsson (SÓ)
3. Jón Erik Sigurðsson (Fram)
SKA þakkar að vanda keppendum, sjálfboðaliðum og starfsmönnum Hlíðarfjalls fyrir góðan dag og sér fram á frábæra skíðaveislu um helgina sem heldur áfram í fyrramálið með keppni í stórsvigi.


Pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.