.
Um helgina fór fram Unglingameistaramót Íslands á Ísafirði. Keppendur voru á aldrinum 12-15 ára og var keppt í svigi og stórsvigi.
Fyrsta keppnin fór fram á fimmtudaginn og var um að ræða aukamót/bikarmót sem átti að fara fram á Siglufirði fyrr í vetur en var frestað vegna veðurs.
Keppni í svigi á UMÍ átti svo að fara fram á föstudaginn en var aflýst þ.s. hlýindi í bland við frost höfðu skapað hættulegar aðstæður í brekkunum.
Ákveðið var því að keyra bæði svig og stórsvig í gær, laugardaginn 12. apríl, og fór sú keppni fram í miklum vindi.
Að lokum átti að fara fram keppni í samhliðasvigi í dag en ákveðið var að aflýsa þeirri keppni vegna veðurútlits.
Skv. Kristni Magnússyni var helgin alveg frábær. Krakkarnir stóðu sig virkilega vel í krefjandi veðri og aðstæðum. Stór hópur foreldra fylgdi hópnum á Ísafjörð og skapaði góða stemmningu í kringum mótið.
Úrslit mótanna má nálgast á Mótakerfi SKÍ.
Nokkrir iðkendur SKA komust á verðlaunapall og má sjá myndir hér að neðan af verðlaunaafhendingu að móti loknu. Lokahófið fór fram á veitingastaðnum Logni á Hótel Ísafirði - segja má að það sé ákveðinn húmor í því miðað við veðurskilyrði helgarinnar.
Bikarmót í svigi - frestað mót

Flokkur 12-13 ára stúlkna: Viktoría Rós Stefánsdóttir endaði í 5. sæti og Hekla Sól Helgadóttir í 6. sæti.

Flokkur 14-15 ára stúlkna: Sylvía Mörk Kristinsdóttir endaði í 2. sæti.

Flokkur 14-15 ára drengja: Friðrik Kjartan Sölvason endaði í 2. sæti og Bjarki Orrason í 4. sæti
Stórsvig - Unglingameistaramót Íslands

Flokkur 12-13 ára stúlkna: Viktoría Rós Stefánsdóttir endaði í 5. sæti og Hekla Sól Helgadóttir í 6. sæti

Flokkur 12-13 ára drengja: Elvar Magni Þorvaldsson endaði í 1. sæti og Bjarki Freyr Fannarsson í 4. sæti

Flokkur 14-15 ára stúlkna: Sylvía Mörk Kristinsdóttir endaði í 2. sæti

Flokkur 14-15 ára drengja: Friðrik Kjartan Sölvason endaði í 4. sæti
Svig - Unglingameistaramót Íslands

Flokkur 12-13 ára stúlkna: Viktoría Rós Stefánsdóttir endaði í 5. sæti og Hekla Sól Helgadóttir í 6. sæti

Flokkur 12-13 ára drengja: Elvar Magni Þorvaldsson endaði í 1. sæti

Flokkur 14-15 ára drengja: Bjarki Orrason endaði í 4. sæti (Afsaka myndagæði)
Bikarameistarar 2026

Flokkur 12-13 ára drengja: Elvar Magni Þorvaldsson er Bikarmeistari 2026

Flokkur 14-15 ára drengja: Friðrik Kjartan Sölvason endaði í 3. sæti

Flokkur 14-15 ára stúlkna: Sylvía Mörk Kristinsdóttir endaði í 3. sæti
Við óskum okkar krökkum innilega til hamingju með árangurinn.
Mót þetta var næst síðasta mót skíðavetrarins 2025-2026. Nú er stærsta mót vetrarins framundan - sjálfir Andrésarleikarnir.
Við hlökkum til að fylgjast með okkar fólki þar, ljúka vetrinum með glæsibrag.
Áfram SKA
Pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.