Tvö Atomic Cup mót í vikunni

Það er í ýmsu að snúast hjá Skíðafélagi Akureyrar um þessar mundir. Í vikunni verður haldið tvöfalt svigmót miðvikudaginn 3. apríl og miðvikudaginn 4. apríl verður tvöfalt stórsvigsmót. Hér er að finna ítarlega dagskrá mótanna. Á dögum sem þessum þurfum við hjá Skíðafélaginu á öllum þeim stuðningi á að halda sem mögulegt er að fá. Ef að gamlar kempur eru á lausu þessa tvo daga og eru í stuði til þess að vera sjálfboðaliðar við brautarvinnslu eða portavörslu þá er það mögnuð leið til þess að komast í sólina uppi í fjalli. Ef þið eruð á lausu - þá sér Sólrún Tryggvadóttir um starfsmannamál á mótunum en það má finna hana á Facebook eða senda henni SMS í síma 8651363. 

 

Hlökkum til að sjá sem flesta!