Styrktarsjóður Óðins Árnasonar úthlutar þremur styrkjum

Á gamlársdag veitti stjórn styrktarsjóðs Óðins Árnasonar í fyrsta skipti til afreksiðkenda Skíðafélags Akureyrar. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans að styrkja afreksiðkendur sem séu landsliðsfólk og/eða taki þátt í alþjóðlegum verkefnum. Styrkveitingin fór fram að við stöddum gestum á Backpackers í Hafnarstræti. 

Styrktarsjóður Óðins Árnasonar var stofnaður af SKA með gjafafé frá velunnurum skíðaíþróttarinnar sem vildu minnast Óðins og hans framlags til skíðaíþróttarinnar á Akureyri. 

Sjóðurinn óskaði eftir umsóknum í desember síðast liðinn og gátu umsækjendur sótt um styrki vegna æfinga og/eða keppnisverkefna erlendis á keppnistímabilinu 2019-2020. 

Katla Björg Dagbjartsdóttir landsliðskona í alpagreinum, Baldur Vilhelmsson og Benedikt Friðbjörnsson - báðir landsliðsmenn á snjóbrettum - hlutu styrk að þessu sinni. Stjórn styrktarsjóðsins óskar þeim öllum til hamingju og velfarnaðar á keppnisárinu. 

Mynd; Frænka Benedikts Friðbjörnssonar, Emilía Óladóttir tók við styrknum fyrir hans hönd, Baldur Vilhelmsson og Katla Björg Dagbjartsdóttir. Pétur Maack og Jón Ingvi Árnason úr stjórn styrktarsjóðs ÓA eru með þeim á myndinni. 

Um styrktarsjóð Óðins Árnasonar