STYRKTARSJÓÐUR ÓÐINS ÁRNASONAR AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI

Frá úthlutun sjóðsins 2020
Frá úthlutun sjóðsins 2020

Styrktarsjóður Óðins Árnasonar var stofnaður af SKA með gjafafé frá velunnurum skíðaíþróttarinnar  sem vildu minnast Óðins og hans framlags til skíðaíþróttarinnar á Akureyri. Samkvæmt skipulagsskrá  sjóðsins er tilgangur hans að styrkja afreksiðkendur SKA. Miðað er við að styrkþegar séu landsliðsfólk og/eða taki þátt í alþjóðlegum verkefnum.

Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum um styrki. Hægt er að sækja um styrki vegna æfinga- og/eða  keppnisverkefna erlendis á keppnistímabilinu 2022-2023. Umsókn skal fylgja ítarleg áætlun um  verkefni tímabilsins á erlendri grundu.

Umsókn skal send til skastyrkur@gmail.com

Umsóknarfrestur er til og með 29. desember 2022.

Úthlutun fer fram 31. desember 2022.

Stjórn er hverju sinni heimilt að hafna öllum umsóknum eða velja að styrkja þann fjölda iðkenda sem  stjórn telur hæfasta hverju sinni.

Nánari upplýsingar veitir Jón Ingvi Árnason, sími 8212064 – skastyrkur@gmail.com