Styrktarsjóður Óðins Árnasonar auglýsir eftir umsóknum um styrki

Óðinn Árnason var í forystusveit Skíðaráðs Akureyrar (nú SKA) í hartnær 40 ár. Hann lést árið 2014.
Óðinn Árnason var í forystusveit Skíðaráðs Akureyrar (nú SKA) í hartnær 40 ár. Hann lést árið 2014.

Styrktarsjóður Óðins Árnasonar var stofnaður af SKA með gjafafé frá velunnurum skíðaíþróttarinnar sem vildu minnast Óðins og hans framlags til skíðaíþróttarinnar á Akureyri. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans að styrkja afreksiðkendur SKA. Miðað er við að styrkþegar séu landsliðsfólk og/eða taki þátt í alþjóðlegum verkefnum.

Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum um styrki í fyrsta skipti. Hægt er að sækja um styrki vegna æfinga- og/eða keppnisverkefna erlendis á keppnistímabilinu 2019-2020. Umsókn skal fylgja ítarleg áætlun um verkefni tímabilsins á erlendri grundu.

Umsókn skal send til skastyrkur@gmail.com Umsóknarfrestur er til og með 27. desember 2019. Úthlutun fer fram 31. desember 2019.

Stjórn er hverju sinni heimilt að hafna öllum umsóknum eða velja að styrkja þann fjölda iðkenda sem stjórn telur hæfasta hverju sinni.

Nánari upplýsingar veitir Jón Ingvi Árnason, sími 8212064 – skastyrkur@gmail.com