Stofnun Fjallasíðadeildar SKA - Fjallaskíða, Telemark og splitboard deild SKA

Fjallaskíðadeild SKA 

Fjallaskíða, Telemark og splitboard deild SKA  

Fjallaskíðadeild SKA er stofnuð með þann megintilgang að halda fullorðnum á hreyfingu við aðgengilegar aðstæður. Af hverju að taka lyftuna þegar þú getur gengið upp og notið þess að puða upp á við? 

Æfingar á fimmtudögum kl. 17.30 og á hverjum laugardegi kl. 10.30 - FYRSTA ÆFING/kynningarfundur ÞRIÐJUDAGINN 12. janúar! 

  • Laugardagur - Brottfararstaður tilkynntur á Sportabler fyrir hvern laugardag. 

  • Hlíðarfjall - fimmtudaga kl. 17.30 - hist á skaflinum við skíðaleigu. 

Kvöldæfingar á fimmtudagskvöldum þar sem farið er frá Skíðastöðum í Hlíðarfjalli. Hist við skíðaleiguna og haldið upp í fjall á merktum gönguleiðum. Það er undir hverjum og einum komið hversu hratt er farið. Fjallageitin fer fremst og öryggið rekur lestina. 

Þjálfarar: 

Óskar Ingólfsson 

Kristín Irene Valdemarsdóttir 

Rakel Snorra 

Jón Marinó Sævarsson 

 

Fyrir hvern er þetta? 

Allir sem eiga skíði, bretti, tunnustafi sem hægt er að líma skinn neðaní. Fyrir þá sem geta skíðað en vilja fóta sig áfram í því að stunda fjallaskíði. Þessi hópur mun ganga upp í Hlíðarfjalli á fimmtudögum - hver fer á sínum hraða - einhverjir fara alla leið upp á topp á meðan aðrir ganga upp í Hjallabraut. Eitthvað fyrir alla. 

Meðlimir þurfa að vera 18 ára gamlir og eiga snjóflóðaýlu, skóflu og stöng. Kostur en ekki skilyrði að iðkendur hafi farið á snjóflóðanámskeið. 

Á laugardögum verður gengið í nágrenni Akureyrar, stuttar skemmtilegar og einfaldar ferðir - allar með möguleika á því að fara hærra og gera meira. 

Veður - vont, blautt, vonlaust - hvað þá? 

Gert er ráð fyrir að ganga við flestar aðstæður, þjálfarar senda skilaboð í gegnum SPORTABLER til iðkenda minnst þremur klst fyrir æfingu þar sem gefið er út hvort farið verður eða hvort breytingar verða á brottfarastað. 

 

Æfingatímabilið er frá 12. janúar til 12. maí.  

17 laugardagar 17 fimmtudagar

Samtals 34 skipti 

56.000 kr

Innifalið félagsgjöld í SKA 

Minimum 10 manns. 

Skráning í gegnum SPORTABLER