.
Eins og allir skíðaáhugamenn vita er SKA-ingurinn Sonja Lí Kristinsdóttir stödd á Ítalíu um þessar mundir þ.s hún tekur þátt í Vetrarólympíuleikunum í Mílanó-Cortina.
Sonja keppti í dag í stórsvigi og var í 53. sæti eftir fyrri ferðina. Hún varð svo fyrir því óláni að detta í seinni ferðinni og kláraði ekki.
Hún var nokkuð ánægð með ferðirnar tvær í dag. “Í fyrri ferð var smá vesen með línuval þ.a þá var ég örlítið sein í nokkrum beygjum og missti allavega sekúndu í tveim beygjum. Svo tók ég frekar langt stökk í endann og gargaði smá en allt í allt ánægð með ferðina. Önnur ferð var eiginlega bara góð. Það var harðara færi, kaldara í loftinu, sem var aðeins meira krefjandi. Átti tæknilega góða ferð, góð hreyfing í mér, en svo var ég aðeins of sein og fipaðist aðeins fram af seinasta kantinum og krækti þá í næstu stöng og valt um koll og tók splitt og spígat og allt sem hægt er að taka í fimleikum. En það er allt í lagi með mig ótrúlegt en satt, öll hné ennþá til staðar og nárinn góður.”
Aðspurð útí hvernig sé að vera þátttakandi í leikhúsi draumanna, sjálfum Vetrarólympíuleikunum, svaraði hún að upplifunin væri rosaleg. “Það er í raun rosalegt að vera í kringum þessar stjörnur og bara vera á svæðinu þar sem allir eru og sjá hvernig þær eru bak við tjöldin. Það er rosa gaman. Allt sem er í gangi hérna tek ég inn sem lærdóm svo þetta er allt mjög lærdómsríkt og skemmtilegt.”
Það verður ekki slegið slöku við því framundan hjá Sonju er keppni í svigi sem fram fer á miðvikudaginn næstkomandi. “Næstu dagar fara í undirbúning fyrir svigmótið á miðvikudaginn. Það er strax æfing á morgun klukkan 8 sem er svolítið snemmt, en við græjum það. Það eru æfingar á morgun og hinn en síðan fer tíminn í að slaka á og safna smá orku fyrir miðvikudaginn.”
Sonja var spurð útí persónuleg markmið fyrir svigkeppnina. “Markmiðin mín eru að skila inn tveimur góðum ferðum og bara skíða eins og ég er sátt með, eins og ég á að mér að gera. Við erum ekki búin að vera á neinum svigæfingum núna en undanfarnar vikur heima í Geilo hefur gengið nokkuð vel og ég ætla bara að halda því áfram og vonandi klifra upp um nokkur sæti. Það væri mjög skemmtilegt.”
Við í SKA erum stolt af okkar konu og óskum henni góðs gengið á miðvikudaginn
Hér að neðan má sjá Sonju Lí með stoltum foreldrum sínum, þeim Kidda Magg og Grétu Huld.
Pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.