.
Í gærkvöldi bárust þær fréttir úr skíðaheiminum að Ísland fengi aukasæti í alpagreinum kvenna á Vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir í Mílanó-Cortina á Ítalíu.
Það var enginn önnur en okkar kona, Sonja Lí Kristinsdóttir sem varð þess heiðurs aðnjótandi að vera valin.
Sonja, sem var í fullum undirbúningi við að græja skíði og pakka niður þegar undirritaður heyrði í henni hljóðið í morgun, sagðist nánast snúast hringi í kringum sjálfa sig þar sem mikið af tilfinningum væru að sækja á hana eftir fréttirnar frábæru.
Hún hafði verið lögst á koddann í gærkvöldi þegar kallið kom og hafði hún vart trúað því að þetta væri að gerast.
Hún hefur lengi átt sér stóra drauma og segir þetta vera uppskera óbilandi trúar á sjálfri sér og þeirri vinnu sem hún hefur lagt á sig undanfarin ár. Hún sé búin að vera með þetta á heilanum lengi.
Faðir Sonju, okkar besti maður Kiddi Magg, keppti einmitt á Ólympíuleikunum í Salt Lake City árið 2002 í stórsvigi og svigi.
Kiddi er einnig á förum til Mílanó og Cortina sem þjálfari og verða því feðginin í eldlínunni á Ítalíu næstu daga.
SKA óskar Sonju innilega til hamingju með valið og óskar henni góðs gengis næstu daga
pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.