Skíðatímabilið hafið á ný

Nú á dögunum var unga fólkið okkar í hópi 16 ára og eldri í sinni fyrstu æfingaferð á snjó frá því æfingum lauk í vor. Æfingarnar fóru fram innanhús í SNO sem er í Osló, frábært hús og auðvelt að ná mikið af beygjum. Samkvæmt Fjalari þjálfara skíðaði hópurinn tæplega 3.000 beyjur í svigi á 5 dögum, ásamt frjálsri skíðun og tækniæfingum, við frábærar aðstæður.

Frábær byrjun á skíðavetrinum.