Skíðamóti Íslands í skíðagöngu frestað um viku

Það eru þung spor þessa dagana á ýmsum vígstöðvum. Nú hefur verið ákveðið að fresta Skíðamóti Íslands í skíðagöngu, sem fram átti að fara um helgina, um viku. Þetta er gert í ljósi þess að almannavarnir hafa gefið út tilmæli þess efnis að fólk sé ekki að fara á milli landshluta nema að brýna nauðsyn beri til.

Nánari dags- og tímasetningar koma fyrir helgi.