SKA með fulltrúa á Ólympíuleikunum í Peking

Nú hefur verið birt hvaða skíðafólk mun keppa fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum sem að fara fram í Peking  dagana 3.-20. febrúar næstkomandi. 5 þátttakendur fara frá Íslandi í þetta skiptið.

Þar á meðal er Isak Stiansson Pedersen sem að keppir fyrir SKA. Tveir aðrir keppendur verða í skíðagöngu frá Íslandi og tveir í alpagreinum.

Sjá nánar á heimasíðu ÍSÍ og umfjöllun á visir.is

Við óskum Isak til hamingju með valið og óskum honum velfarnaður.