Sannkölluð skíðaveisla í Hlíðarfjalli í dag

Í dag, laugardaginn 7. Febrúar, var mikið líf og fjör í fjallinu okkar fagra. Spenntir skíðakrakkar voru mættir á skaflinn um kl. 8 í morgun - tilefnið var svokallað Þorramót 2026. Allar brekkur voru undirlagðar af efnilegum skíðakrökkum -  þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í Laugardagshópnum á Töfrateppinu - 6 ára og yngri í Hólabraut - 7-8 ára í Hjallabraut og 9 ára og eldri uppí Norðurbakka.

 

Í Hólabraut var efnt til æfingamóts fyrir krakka fædda 2019, 2020 og 2021. Þar var glatt á hjalla og stór skref stigin hjá mörgum af skíðamönnum framtíðarinnar - líklega flestir að “keppa” í fyrsta sinn. Keppendur voru 66 talsins og er það staðfesting á því gríðarlega öfluga starfi sem unnið er að hvað nýliðun varðar. Ömmur, afar og foreldrar tóku virkan þátt í mótinu og hjálpuðu til við að gera þennan dag ógleymanlegan fyrir krakkana. (Vefsíðan fékk lánaðar myndir frá Bardi Westin sem var með vélina á lofti í Hólabrautinni í morgun. Þess má geta að hann hyggst útbúa síðu á næstu dögum þ.s foreldrar geta keypt myndir af snillingunum sínum)

 



Kl. 9 hófst Þorramót 7-8 ára hópsins í Hjallabraut. Keppt var í stórsvigi og skráðir voru til leiks 50 keppendur, 36 stúlkur og 14 drengir. Eins og venjulega ríkti mikil gleði hjá krökkunum sem nutu þess að fá að reyna sig í brautinni. Í þessum flokki fá krakkarnir tækifæri til að æfa sig í að keppa með öllu því sem því tilheyrir. Tekinn er tími og úrslit skráð(áhugasamir geta nálgast úrslitin á Abler). Ekki eru þó veitt verðlaun fyrir sæti en allir fengu verðlaunapening fyrir þátttöku að móti loknu. Mótið gekk eins og í sögu og ljóst er að framtíðin er björt hjá SKA.

Hér að neðan eru svipmyndir frá Hjallabrautinni í morgun.