Saga Andrésar leikanna komin í loftið

Í tilefni að 50 ára afmælis Andrésar andar leikana var haldin afmælissýning í íþróttahöllinni laugardaginn 25. apríl 2026.

Andrésarleikarnir voru fyrst haldnir árið 1976 og fagna því 50 ára afmæli árið 2026. Af því tilefni var haldin sérstök afmælissýning í íþróttahöllinni þar sem saga leikanna var rifjuð upp í myndum, viðtölum og heimildum frá liðnum árum.

Á sýningunni var ljósmyndasýning sem Hörður Geirsson safnvörður Minjasafnsins á Akureyri tók saman "opnuð" á Youtube rás Andrésar andar leikana. Sýningin er öll á stafrænu formi og settar saman sem 60 mínútuna myndband. Myndirnar endurspegla sögu leikanna á síðustu 50 árum, þróun þeirra og vöxt.

Á sama tíma var sýnd heimildarmynd sem byggir á ljósmyndunum sem Hörður tók saman og texta frá Hermanni Sigtryggssyni sem Kristrún Lind Birgisdóttir nýtti til að prjóna við handrit að myndinni. Heimildarmyndin byggir einnig á viðtali við Ívar Sigmundsson, fyrrum formann Skíðafélags Akureyrar og forstöðumann Hlíðarfjalls, og Fjalar Úlfarsson, núverandi formann Andrésarnefndarinnar.

Sjá meira hér, hlekkir á sýningarnar og meira um sögu leikana.