Nokkrir af máttarstólpum skíðaíþróttarinnar á Akureyri heiðraðir á ársþingi Skíðasambands Íslands

Dagana 9.–11. október fer Skíðaþing Skíðasambands Íslands (SKÍ) fram hér á Akureyri. Um er að ræða 77. ársþing Skíðasambandsins.

Af því tilefni voru nokkrir af máttarstólpum skíðaíþróttarinnar á Akureyri heiðraðir fyrir ómetanlegt starf og mikilvægt framlag sitt til íþróttarinnar í gegnum árin.

Sjálfboðaliðar eru hjartað í íþróttafélögum. Án þeirra væri erfitt að halda úti öflugu íþróttastarfi, skapa góðar aðstæður fyrir iðkendur og byggja upp það samfélag sem íþróttirnar eru. Framlag þeirra, tími og eldmóður eru ómetanleg og leggja grunn að farsælu íþróttastarfi til framtíðar.

Hér að neðan má sjá hverjir voru heiðraðir.

Arna Ívarsdóttir
Arna hefur um árabil verið ein af þeim sem lagt hafa grunninn að öflugu barna- og unglingastarfi Skíðafélags Akureyrar. Hún hélt utan um Andrésarskólann árum saman og átti þannig mikilvægan þátt í að kynna skíðaíþróttina fyrir nýjum kynslóðum. Arna hefur jafnframt komið að skipulagi Andrésar andar leikanna og lagt sitt af mörkum til þess að skapa jákvæða upplifun fyrir unga skíðaiðkendur. Framlag hennar til nýliðunar og uppbyggingar skíðastarfs á Akureyri er afar verðmætt.

Erlingur Guðmundsson
Erlingur hefur um langt árabil verið traustur liðsmaður Skíðafélags Akureyrar, bæði sem þjálfari yngri flokka og öflugur sjálfboðaliði. Hann hefur lagt mikla rækt við uppbyggingu félagsins, setið í stjórn þess og gegnt formennsku á árunum 2012–2014. Erlingur er einn þeirra sem hafa gefið ómælda vinnu og tíma til þess að börn og ungmenni geti stundað skíðaíþróttina við góðar aðstæður. Fyrir það er félagið honum afar þakklátt.

Eyrún Björg Þorfinnsdóttir
Eyrún hefur um árabil gegnt lykilhlutverki í framkvæmd Andrésar andar leikanna sem starfsmannastjóri alpagreina. Þar þarf að manna um eitt hundrað störf á dag í þrjá daga og tryggja að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Með einstakri skipulagshæfni, útsjónarsemi og góðu samstarfi við Sólrúnu Tryggvadóttur hefur Eyrún átt stóran þátt í farsælu mótahaldi. Framlag hennar fer ef til vill ekki alltaf hátt, en er ein af mikilvægustu forsendum þess að leikarnir geti farið fram með glæsibrag.

Eyrún hefur jafnframt lagt sitt af mörkum til félagsstarfsins með setu í ferðanefnd SKA, þar sem hún hefur komið að mikilvægri umgjörð utan um ferðir iðkenda. Framlag hennar er ómetanlegt og hefur átt stóran þátt í því öfluga starfi sem einkennir Skíðafélag Akureyrar.

Guðjón Marteinsson
Guðjón er einn af þessum ómetanlegu sjálfboðaliðum sem halda áfram að gefa af sér til félagsins löngu eftir að eigin börn hafa lokið keppnisferlinum. Hann hefur um árabil verið boðinn og búinn að leysa fjölbreytt verkefni fyrir Skíðafélag Akureyrar og gegndi meðal annars formennsku á árunum 2014–2016. Guðjón er maður sem hægt er að treysta á þegar á reynir og hefur sýnt í verki að félagsstarf snýst um miklu meira en þátttöku eigin barna. Slík tryggð og ósérhlífni er félaginu ómetanleg.

Sólrún Tryggvadóttir
Sólrún hefur um árabil verið ein af lykilmanneskjum á bak við farsæla framkvæmd Andrésar andar leikanna. Ásamt Eyrúnu Björgu hefur hún borið ábyrgð á starfsmannahaldi alpagreina, þar sem skipuleggja þarf um eitt hundrað störf á hverjum keppnisdegi. Slíkt verkefni krefst bæði útsjónarsemi, þolinmæði og mikillar skipulagshæfni. Sólrún hefur sinnt þessu mikilvæga hlutverki af einstakri alúð og átt stóran þátt í að skapa þá faglegu og jákvæðu umgjörð sem einkennir leikana.

Sólrún hefur jafnframt setið í barna- og unglinganefnd SKA um árabil og þannig lagt mikilvægt framlag til uppbyggingar barna- og unglingastarfs félagsins. Með ósérhlífni sinni hefur Sólrún reynst félaginu afar dýrmætur liðsmaður.

Kolbrún Ingólfsdóttir og Kristján Vilhelmsson (Gullmerki)
Kolbrún Ingólfsdóttir og Kristján Vilhelmsson eða Kolla og Stjáni, hafa um áratugaskeið verið órjúfanlegur hluti af skíðafjölskyldunni á Akureyri. Þau eru foreldrar landsliðs systranna Dagnýar Lindu og Katrínar og þekkja því vel þá elju og fórnfýsi sem fylgir skíðaíþróttinni.

Kolla er mörgum kunn sem rödd Andrésar andar leikanna, en fyrir iðkendur SKA hefur hún ekki síður verið eins konar aukamamma. Hún er alltaf tilbúin að hlúa að, hvetja og hjálpa, ekkert verkefni er of stórt eða smátt fyrir Kollu.

Stjáni hefur sömuleiðis verið sannkallaður klettur í starfi félagsins. Hann er ávallt boðinn og búinn að svara kallinu og leggja félaginu lið, hvar sem þörfin er mest.

Það er ekki sjálfgefið að foreldrar haldi áfram að gefa jafn ríkulega af tíma sínum og kröftum til félagsstarfsins löngu eftir að eigin börn hafa lokið keppnisferlinum. Kolla og Stjáni eru svo sannarlega lifandi dæmi um þá tryggð og ósérhlífni sem öflugt íþróttastarf byggir á.

Fyrir einstakt framlag þeirra beggja til skíðaíþróttarinnar eru Kolbrún Ingólfsdóttir og Kristján Vilhelmsson sæmd gullmerkjum Skíðasambands Íslands.

Friðbjörn Benediktsson
Friðbjörn, hefur verið mikilvægur frumkvöðull í uppbyggingu snjóbretta íþróttarinnar á Akureyri. Hann var meðal þeirra sem komu brettadeild Skíðafélags Akureyrar á laggirnar árið 2011 og lagði þannig grunn að nýjum tækifærum fyrir unga iðkendur. Friðbjörn hefur jafnframt gegnt ábyrgðarstörfum innan Skíðasambands Íslands, bæði í stjórn sambandsins og sem formaður snjóbrettanefndar. Frumkvæði hans og ósérhlífni munu hafa áhrif á brettahreyfingu Íslands um ókomin ár.

Eyþór Ólafur Bergmannsson

Eyþór er Ísfirðingur sem ólst upp í skíðabrekkunum á Seljalandsdal, en hefur á fullorðinsárum lagt mikla natni við skíðagönguna í Skíðafélagi Akureyrar. Eyþór hefur setið óslitið í skíðagöngunefnd SKA um margra ára skeið og verið meðal þeirra einstaklinga sem hafa látið íþróttina blómstra í Hlíðarfjalli. Eyþór hefur um árabil verið ómissandi í öllu mótahaldi félagsins og það við um stærri sem smærri mót og var Eyþór meðal annarra burðarstólpinn í alþjóðlega mótinu Scandinavian Cup 2022 sem tókst með eindæmum vel. Eyþór er ötull í að skipuleggja vinnudaga í Hlíðarfjalli hvort sem er vetur eða sumar, og hvort sem er unnið í brautum eða í skíðagönguhúsinu. Ósérhlífni hans, vinnusemi og nákvæmni við öll verk er öðrum til félagsmönnum til eftirbreytni – aldrei er gefið eftir í umgjörð mótanna eða fagmennsku í mótahaldi.

Við þökkum þeim öllum fyrir allt sem þau hafa lagt af mörkum til eflingar skíðaíþróttarinnar á Akureyri.