.
Skíðafélag Akureyrar minnist Hauks Jóhannssonar, eins fremsta skíðamanns félagsins og landsins á áttunda áratug síðustu aldar. Haukur fæddist á Akureyri 17. janúar 1953 en lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 14. janúar. Haukur keppti lengi fyrir Skíðafélag Akureyrar. Hann tók fyrst þátt í landsmóti í flokki fullorðinna árið 1971 og keppti alls á tíu landsmótum. Á þeim vann hann fjölda Íslandsmeistaratitla í alpagreinum, meðal annars í svigi árin 1972 og 1973, í stórsvigi árin 1974, 1975 og 1980 og í alpatvíkeppni árin 1972, 1979 og 1980. Auk þess vann hann margsinnis gullverðlaun í flokkasvigi.
Haukur keppti einnig mikið erlendis. Árið 1971 fór hann til Bandaríkjanna í boði Rotaryklúbbsins í Portsmouth og tók þar þátt í skíðamótum í Bristol og Waterville Valley. Þar endaði hann í þriðja sæti í stórsvigi og í öðru sæti í svigi í fjölmennum keppnum. Hann tók þátt í sterku Evrópumóti í St. Moritz í Sviss og náði þar góðum árangri, meðal annars 12. sæti í stórsvigi þar sem 86 keppendur voru skráðir til leiks. Þá sigraði hann alþjóðlegt mót tannlækna og tannsmiða með yfir tvö hundruð keppendum, þrátt fyrir að ræsa aftarlega.
Hann keppti fyrir Íslands hönd á Vetrarólympíuleikunum í Innsbruck árið 1976 og tók þar þátt í svigi og stórsvigi. Í svigi náði hann 32. sæti. Þátttaka hans á Ólympíuleikum var markverður áfangi í hans ferli og í sögu Skíðafélags Akureyrar. Einnig keppti hann á Heimsmeistaramótunum í St. Moritz 1974 og í Garmisch-Partenkirchen 1978.
Á landsmóti á Akureyri um páskana 1980 hlaut Haukur tvö gullverðlaun og tilkynnti í kjölfarið að hann hyggðist hætta keppni á skíðum, 27 ára að aldri, eftir langan og árangursríkan keppnisferil.
Skíðafélag Akureyrar þakkar Hauki Jóhannssyni fyrir hans framlag til félagsins og íslenskra skíðaíþrótta og sendir fjölskyldu hans, ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur.
Haukur Jóhannsson í keppni í stórsvigi.
pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.