.
Skíðafélag Akureyrar hefur hrint af stað nýju og spennandi samfélagsverkefni í samstarfi við leikskólann Hólmasól sem ber heitið „Litlu skíðavinirnir“. Verkefnið er að frumkvæði Skíðafélags Akureyrar og miðar að því að kynna skíðaíþróttir fyrir leikskólabörnum.
Markmið verkefnisins er að gefa börnunum tækifæri til að kynnast skíðum í gegnum leik, hreyfingu og útivist í skemmtilegu umhverfi. Um 30 börn úr leikskólanum Hólmasól taka þátt í verkefninu og fá þau alls sex skipti á skíðum yfir veturinn þar sem þau prófa bæði gönguskíði og alpaskíði undir leiðsögn þjálfara frá Skíðafélagi Akureyrar og í fylgd starfsfólks leikskólans.
Verkefnið byggir á þeirri einföldu en mikilvægu hugsjón Skíðafélagsins að öll börn eigi rétt á því að finna sig í hreyfingu, upplifa gleði í náttúrunni, vera hluti af samfélagi sem styður þau og að fyrstu kynni barna af íþróttum þurfi að vera jákvæð. Skíðafélag Akureyrar leggur til allan nauðsynlegan búnað svo öll börnin geti tekið þátt óháð því hvort fjölskyldur þeirra eigi skíðabúnað eða ekki.
Skíðaiðkun er ekki aðeins íþrótt; hún er leið til að efla hugrekki, seiglu og þrautseigju sem og sjálfsaga og samvinnu. Aðstæður geta verið alls konar í fjallinu og því þarf stundum að klæða sig í mikinn búnað og hafa fyrir því að mæta upp í fjall. Við trúum því að skíðaiðkun kenni börnum að takast á við áskoranir sem styrkja sjálfsmynd þeirra - jafnt í fjallinu sem og í lífinu sjálfu.
„Litlu skíðavinirnir“ er hugsað sem tilraunaverkefni sem gæti í framtíðinni verið þróað áfram og fleiri leikskólum á Akureyri boðin þátttaka. Með verkefninu vill Skíðafélag Akureyrar leggja sitt af mörkum til þess að kynna ungum krökkum íþróttirnar sem hægt er að stunda uppi í Hlíðarfjalli. Líklegra er að börn og fjölskyldur þeirra mæti upp í fjall ef skíðaáhuginn og kunnáttan er til staðar strax í upphafi.
Skíðafélag Akureyrar sér einnig tækifæri til að þróa verkefnið áfram sem hluta af stærra lýðheilsuverkefni fyrir börn á Akureyri og vill í því samhengi hvetja Akureyrarbæ til að skoða möguleika á samstarfi til framtíðar.
Til þess að verkefnið gat orðið að veruleika þurfti að fjárfesta í búnaði og tryggja aðgengi barnanna að skíðasvæðinu. Skíðafélag Akureyrar vill því koma á framfæri sérstökum þökkum til þeirra fyrirtækja og samstarfsaðila sem studdu verkefnið og gerðu það mögulegt.
Sérstakar þakkir fá:
Fjallanöf, Útisport, SBA Norðurleiðir, KEA og Hlíðarfjall, sem öll lögðu verkefninu lið með styrk.
Jafnframt vill Skíðafélag Akureyrar þakka þeim einstaklingum sem styrktu verkefnið með kaupum á skíðabúnaði fyrir börnin, þið vitið hver þið eruð og þið eruð félaginu ómetanleg.
Að lokum vill félagið færa sjálfboðaliðum sínum sérstakar þakkir. Þeir taka á móti börnunum, leiðbeina þeim á skíðum og leggja verkefninu lið með ómetanlegri vinnu. Skíðafélag Akureyrar er ríkt af öflugum mannauði og það er einmitt þessi samheldni og vilji til að leggja sitt af mörkum sem gerir félagið að sterku og stöðugu íþróttafélagi.
Áfram SKA!
Hér að neðan eru svipmyndir frá heimsóknum Hólmasól í fjallið það sem af er vetri
Pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.