Langstærsti þjónustusamningur Akureyrarbæjar við íþróttafélag!

Skíðafélag Akureyrar fagnar uppbyggingu íþróttastarfs sem átt hefur sér stað á Akureyri á síðustu árum. Öflugt samstarf bæjarins og íþróttafélaga hefur skilað glæsilegum mannvirkjum og öflugu íþróttastarfi. Uppbygging hjá Þór, KA, Golfklúbbi Akureyrar, Skautafélagi Akureyrar og Nökkva sýnir vel hvers íþróttafélög eru megnug þegar sérþekking og rekstur fara saman.

Andrésar andar leikarnir fögnuðu 50 ára afmæli í ár með stærsta skíðamóti sem haldið hefur verið á Íslandi. Samt sem áður tekur sami fermetrafjöldi enn á móti keppendum og gestum og ónýtt tækifæri blasa við í betri nýtingu á snjóframleiðslu, landmótun og snjótroðslu.

Skíðafélag Akureyrar fer fram á að rekstur svæðisins verði falinn rekstrarfélagi SKA með formlegum þjónustu- og rekstrarsamningi, þar sem sérþekking á vetraríþróttum og rekstur fara saman. Félagið er öflug liðsheild og fer ört vaxandi og á síðustu árum hefur það nær tvöfaldast að stærð og er nú eitt af fjórum stærstu íþróttafélögum Akureyrar þegar iðkendur yngri en 18 ára eru taldir. 

Félagið skorar á bæjaryfirvöld og frambjóðendur að setja rekstrar- og þjónustusamning við SKA í forgang. Akureyringar eru einhuga um að öflug starfsemi í Hlíðarfjalli skiptir máli. Rekstrarsamningurinn yrði sá stærsti sem gerður hefur verið og áhrifin á þjónustu við gesti og iðkendur yrðu strax áþreifanleg. Árleg meðgjöf Akureyrarbæjar til Hlíðarfjalls er um 250 milljónir króna og myndi sú upphæð marka grunn samningsins.

Með því að fela SKA reksturinn skapast skýr tækifæri til að bæta þjónustu, efla tekjur og styrkja stöðu Akureyrar sem miðstöð vetraríþrótta. Jafnframt opnast möguleikar á fjölgun opnunardaga, auknum tekjum yfir sumartímann og markvissari uppbyggingu þjónustu fyrir hjólafólk og gesti sem sækja svæðið heim til að njóta útsýnis og útivistar allt árið um kring.

Fyrir hönd Skíðafélags Akureyrar 

  • Fannar Gíslason, formaður SKA - Sími: 8977104 

  • Halla Sif Guðmundsdóttir, varaformaður SKA - Sími: 8455930