.
Í dag fór fram Akureyrarmót í stórsvigi fyrir bæði 6-8 ára hóp í Hjallabrautinni og 9-15 ára hóp í Norðurbakka.
Það var blíðskaparveður, lognið á undan storminum eins og einhver myndi kalla það miðað við spá næstu daga, en það tók að kólna vel þegar leið á. Krakkarnir létu það ekki hafa mikil áhrif á sig og virtust njóta sín vel í brekkunum í dag.
Yngri hópurinn stóð sig frábærlega. Likt og áður var ekki keppt um sæti í þessum flokki og fengu allir þátttökuverðlaun að móti loknu. Tímataka fór fram að vanda og geta áhugasamir séð niðurstöður á Abler.
Hér má sjá myndir frá yngri hópnum í dag.
Hér að neðan má sjá myndir frá verðlaunaafhendingu 9-15 ára hópsins ásamt úrslitum úr tímatöku. Einnig eru svipmyndir úr brekkunum í dag.
Það var Ólympíufarinn okkar í SKA Sonja Lí Kristinsdóttir sem veitti verðlaun að keppni lokinni. Hún er mætt heim til að taka þátt í skíðaveislunni sem er framundan í Hlíðarfjalli í komandi viku.
Flokkur 9 ára drengja
Aron Breki Haraldsson
Óðinn Helgi Fannarsson
Sindri Snær Þorvaldsson
Benóný Þór Jónasson
Jóhann Bjarni Andrason