.
Á síðustu vikum hefur Skíðafélag Akureyrar fundað með framboðum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á Akureyri.
Til að tryggja gagnsæi og jafnræði voru öllum framboðum lagðar fyrir sömu fimm spurningarnar um framtíð Hlíðarfjalls, samstarf Akureyrarbæjar og SKA.
Hér fyrir neðan birtum við svör þeirra óbreytt, í sömu röð undir hverri spurningu.
🔴 Samfylkingin
🔵 Akureyrarlistinn
🟠 L-listinn
🟣 Miðflokkurinn
🟧 Viðreisn
🔷 Sjálfstæðisflokkurinn
🟢 Framsókn
———
Styður þitt framboð að Akureyrarbær hefji formlegar viðræður við SKA um þjónustu- og/eða rekstrarsamning vegna reksturs Hlíðarfjalls á næsta kjörtímabili?
🔴 Samfylkingin:
„Samfylkingin á Akureyri styður heilshugar aðkomu SKA að rekstri Hlíðarfjalls. Fyrsta skrefið í slíku verkefni væri að okkar mati að halda áfram þeim samtölum sem hafa átt sér stað núna í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga um möguleikann á þjónustu- og/eða rekstrarsamningi milli bæjarins og SKA um að félagið sjái um rekstur Hlíðarfjalls, í heild eða að hluta.“
🔵 Akureyrarlistinn:
„Já“
🟠 L-listinn:
„Við erum jákvæð fyrir því að hefja formlegar viðræður við SKA á næsta kjörtímabili.“
🟣 Miðflokkurinn:
„Ekki spurning, mér líst mjög vel á það.“
🟧 Viðreisn:
„Já, Viðreisn styður það mál heilshugar. Það er erfitt að rökstyðja það að Akureyrarbær haldi áfram rekstrinum með núverandi fyrirkomulagi ef það er hægt að gera það með árangursríkari hætti bæði fyrir íbúa og gesti Akureyrar. Það er augljóst að þó svo að formlegar viðræður við SAK fari í strand á einhverjum tímapunkti að þá þurfa a.m.k. önnur sveitarfélög á svæðinu að koma að rekstrinum með einhverjum hætti.“
🔷 Sjálfstæðisflokkurinn:
„Sjálfstæðisflokkurinn er með á stefnuskrá sína um að stofnaður verði vinnuhópur um framtíðarfyrirkomulag Hlíðarfjalls. Markmið hópsins verði að skoða hvernig Skíðafélag Akureyrar komi með formlegum hætti að rekstri, stefnumótun og þróun svæðisins þannig að fagþekking félagsins nýtist betur við ákvarðanir og uppbyggingu.“
🟢 Framsókn:
„Við erum jákvæð fyrir því að skoða þetta að alvöru en getum engu lofað um útkomuna að svo stöddu.“
———
Telur þú Hlíðarfjall vera eitt af mikilvægustu samfélags- og lýðheilsuinnviðum Akureyrarbæjar? Ef já, hvernig myndi það birtast í áherslum ykkar á næsta kjörtímabili?
🔴 Samfylkingin:
„Hlíðarfjall er svo sannarlega stór og myndarlegur hluti af þeirri mynd sem við viljum mála af bænum okkar sem íþrótta- og útivistabær. Svæðið hefur verið byggt upp yfir langan tíma fyrir almannafé og því afar mikilvægt að hlúa vel að þessum innviðum okkar, sem Akureyringar ganga réttilega að sem vísum. Það hefur hins vegar að okkar mati skort á aðgengi að svæðinu fyrir alla hópa samfélagsins í of langan tíma núna. Til að mynda eru engar almenningssamgöngur í Hlíðarfjall eins og stendur. Framboð Samfylkingarinnar á Akureyri gengur m.a. út á það að tryggja öllum Akureyringum jöfn tækifæri, að skilja engann eftir. Þannig munum við leggja á það áherslu á komandi kjörtímabili að tryggja aðgengi að fjallinu óháð efnahag, uppruna eða annarrar samfélagslegrar stöðu.“
🔵 Akureyrarlistinn:
„Já, það er mjög skýrt í stefnu Akureyrarlistans frá stofnun að við viljum kaupa nýja stólalyftu, jafna brekkur, stækka bílastæðið og bæta aðstöðuna í samstarfi við Vetraríþróttamiðstöð Íslands.“
🟠 L-listinn:
„Já við gerum það. Mikilvægi Hlíðarfjalls mun birtast í áframhaldandi uppbyggingu á næsta kjörtímabili þar sem við munum klára framkvæmdir við félagsaðstöðu SKA og byrja á landmótun í skíðabrekkunum.“
🟣 Miðflokkurinn:
„Já, ég er algjörlega sammála því. Þetta er náttúrulega kannski okkar helsta perla á veturna til að fá fólk norður. Svo eru bara ótrúlega margir krakkar að æfa og ég tala nú ekki um allt fólkið sem fer síðan til að skemmta sér og njóta fjallsins.“
„Við höfum náttúrulega verið að setja mikið af peningum í fjallið á þessu kjörtímabili, en það er kannski ekki allt sjáanlegt því skíðamenn sjá það ekki beint í fjallinu eða lyftunum. Það hefur meira farið í innviði og ýmislegt bakvið tjöldin. En vonandi getum við farið að gera meira í fjallinu sem skíðamenn taka eftir.“
🟧 Viðreisn:
„Frábær spurning. Það er engum blöðum um það að fletta að Hlíðarfjall gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki fyrir svæðið í heild. Fyrir íbúa gegnir fjallið hlutverki þess að vera eitt mikilvægasta samfélags- og lýðheilsuinnviðum svæðisins, en gott má gera enn betur. Til dæmis má nefna aðgengi að Hlíðarfjalli fyrir þá íbúa sem ekki keyra um á einkabílum svo eitthvað sé nefnt, því útivistarparadís hlýtur að þurfa að huga að umhverfis- og loftslagsmálum og þá vakna spurningar um núverandi skipulag samgöngumála á svæðinu. Fyrir gesti, bæði innlenda og erlenda er Hlíðarfjall mikið aðdráttarafl og tækifæri til sóknar þar. Af fjallinu er gríðarlega mikið um afleidda þjónustu sem veitt er af hótelum, gistiheimilum, veitingastöðum og afþreyingu í bænum. Ef gestir koma til Akureyrar á skíði, þá græðir þjónustu- og menningargeirinn á því.“
🔷 Sjálfstæðisflokkurinn:
„Hlíðarfjall gegnir mjög stóru hlutverki í vetrarferðamennsku á Akureyri. Þess fyrir utan er fjallið útivistaparadís okkar Akureyringa og hefur þátttaka Akureyringa aukist verulega með tilkomu Lýðheilsukortsins sem Sjálfstæðisflokkurinn studdi á síðasta kjörtímabili.
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að mynduð sé heildstæð framtíðarsýn um fjallið og með því hægt að tryggja að þjónusta fjallsins við íbúa Akureyrar og gesta okkar sé tryggð.“
🟢 Framsókn:
„Að sjálfsögðu teljum við það. Þetta er í okkar málefnaskrá: Upplifunarbærinn Akureyri. Útivist, rómantík, dekur og ævintýri. Sköpum góða umgjörð fyrir frábæra upplifun og markaðssetjum upplifunarbæinn Akureyri.
Við teljum Hlíðarfjall bjóða upp á mikla möguleika í að markaðssetja Akureyri sem áfangastað allt árið en þá þurfum við að bæta aðstöðuna og þjónustu í fjallinu. Sérstaklega taka á umgengni á svæðinu.“
———
Myndi þitt framboð styðja samstarfsverkefni Akureyrarbæjar og SKA um verkefnið „Skíðavinir“ fyrir öll börn á elsta ári í leikskólum bæjarins?
🔴 Samfylkingin:
„Skíðavinir er mjög spennandi verkefni sem við viljum gjarnan sjá ná til allra barna í bænum og eiga þau sem að því hafa staðið mikið hrós skilið. Verkefnið rímar vel við áherslur okkar eins og fram kemur hér að framan.“
🔵 Akureyrarlistinn:
„Já“
🟠 L-listinn:
„Já, við erum mjög hrifin af verkefninu.“
🟣 Miðflokkurinn:
„Já, ég er alveg tilbúinn í það. Ég myndi klárlega styðja það.“
🟧 Viðreisn:
„Já, ekki spurning. Verkefnið “Skíðavinir” talar inn í hjarta stefnu Viðreisnar þar sem við viljum horfa til aukins samstarfs við íþróttafélög á svæðinu um að koma til móts við ákall ÍSÍ um að börn eigi að fá tækifæri til þess að prófa fjölbreyttar íþróttir á barnsaldri. Við sjáum samstarfstækifæri við elstu deildir leikskóla auk tímans sem börn á yngsta stigi grunnskóla er í frístund á milli kl 13-16. Ein helsta meinsemd barnafjölskyldna er að tíminn til þess að njóta lífsins er af skornum skammti þegar allir fjölskyldumeðlimir eru í tómstundum, skóla, vinnu og allskonar afþreyingu sem Akureyri hefur upp á að bjóða. Skipulagt skóla- og tómstundastarf á að fara fram á vinnutíma foreldra eftir fremsta megni, það eru alvöru lífsgæði.“
🔷 Sjálfstæðisflokkurinn:
„Sjálfstæðisflokkurinn styður heilshugar verkefnið skíðavinir og mun tryggja að verkefnið fái að vaxa áfram ef flokkurinn verður í meirihluta.“
🟢 Framsókn:
„Við vitum ekki mikið um verkefnið eða kostnað við verkefnið en erum jákvæð.“
———
Ert þú tilbúin/n að styðja að málefni Hlíðarfjalls og samstarf við SKA verði sérstaklega til umfjöllunar í mögulegum meirihlutasamningi eftir kosningar?
🔴 Samfylkingin:
„Það getur vel komið til greina að málefni Hlíðarfjalls og frekari aðkoma SKA að rekstri svæðisins eigi sér stað í meirihlutasamningi sem Samfylkingin á Akureyri ætti aðild að.“
🔵 Akureyrarlistinn:
„Já“
🟠 L-listinn:
„Já, við styðjum það.“
🟣 Miðflokkurinn:
„Það er svolítið erfitt að lofa því sérstaklega. Ef við erum sammála um að fara í eitthvað, þá er ekkert mál að hafa það í samningi. En ef það eru ekki allir alveg onboard og öðrum finnst önnur mál mikilvægari, þá getur það orðið flókið. En ég held að við verðum örugglega sammála um eitthvað, þannig að vonandi kemur þetta inn með einhverjum hætti.“
🟧 Viðreisn:
„Já, eftir fund með SKA að þá förum við fullum fetum inn í samtal með nýjum meirihluta um að þetta samtal fari skýrt inn í meirihlutasamning og fögnum frumkvæði og krafti SKA að vekja athygli á þessum vilja sínum.“
🔷 Sjálfstæðisflokkurinn:
„Já, sjá lið 1“
🟢 Framsókn:
„Það þarf klárlega að taka samtalið.“
———
Annað sem þitt framboð vill koma á framfæri við félagsmenn SKA?
🔴 Samfylkingin:
„Það er í okkar huga augljóst að það er mikill hugur í stjórn og félagsfólki SKA varðandi starfsemi félagsins og sjá má að horft er til framtíðar. Það er afar ánægjulegt að sjá og við hvetjum ykkur áfram til dáða.“
🔵 Akureyrarlistinn:
„Það þarf ekki annað en að horfa yfir listann til að sjá að Akureyrarlistinn hefur sannarlega raunverulegan áhuga á að efla Hlíðarfjall.“
🟠 L-listinn:
„Við þökkum fyrir góða kynningu á starfi og framtíðarhorfum SKA og vonumst eftir góðu samstarfi á komandi kjörtímabili.“
🟣 Miðflokkurinn:
„Í sambandi við þetta að SKA fari að reka fjallið frekar en Akureyrarbær þá hef ég alltaf sagt það síðan ég kom inn í bæjarstjórn fyrir átta árum síðan að ég held að þetta verði aldrei almennilega gert á meðan Akureyrarbær rekur fjallið. Ég hef alltaf viljað sjá þetta meira í einkarekstri, þannig að ég held að þetta sé allavegana næsti bær við að þið allavegana byrjið á því. Mér finnst því mjög jákvætt að þessi umræða sé farin af stað og ég tel að þetta sé skref í rétta átt.“
🟧 Viðreisn:
„Viðreisn telur að hér sé um að ræða mikilvægt framtíðarmál fyrir börn og fjölskyldur, iðkendur, lýðheilsu, útivist, ferðaþjónustu, atvinnulíf og búsetugæði á Akureyri.
Félagsmenn SKA eru fólk á fjölbreyttum stöðum í samfélaginu okkar. Við höfum reynslu af því að taka þátt í starfi SKA, verið iðkendur en líka sem “áhorfendur” ef svo má að orði komast. Það er augljóst að SKA starfar eftir skýrri fjölskyldu og inngildingar hugsjón þar sem reynt er eftir fremsta megni að kynna þessa mikilvægu vetraríþrótt fyrir öllum þeim sem áhuga hafa. Þennan kraft þarf að virkja til alvöru breytinga og Viðreisn gleðst mikið yfir þeirri framtíðarsýn sem félagið hefur fyrir þetta stóra sameiningartákn svæðisins.“
🔷 Sjálfstæðisflokkurinn:
„Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að unnið sé áfram að því að efla Hlíðarfjall sem áfangastað til þess að bæta stoðir við vetrarferðamennsku á Akureyri og æfinga- og keppnisfólk.“
🟢 Framsókn:
„Við erum afskaplega bjartsýn á framtíð vetraríþrótta á Akureyri. Sagan og reynslan eru mikilvægar grunnstoðir, og SKA er þar hryggjarstykkið. Við megum því ekki gefast upp, hvorki gagnvart því að fá raunverulegan stuðning við Vetraríþróttamiðstöðina né við Þjóðarleikvang vetraríþrótta. Mesti styrkleikinn okkar, sem ferðaþjónustubær Íslands, liggur í fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum.“
Pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.