Hermannsgangan 2020 - skráning hafin

Hermannsgangan fer fram í Hlíðarfjalli 25. janúar 2020. Gangan er fysta ganga í Íslandsgöngumótaröðinni. Eins og með allar göngur í mótaröðinni þá eru þær hugsaðar jafnt fyrir trimmara sem og keppnisfólk og allir eiga að finna vegalengd við hæfi. Reynt verður að gera brautina svo hún hæfi öllum.



24 km. fyrir 17 ára og eldri. Skráningargjald 6.000 kr. til og með 19. janúar, eftir það hækkar skráningargjald í 8.000 kr. Skráningu lýkur 24. janúar kl. 21:00.

ATH að í ár verður einnig boðið upp á opið start fyrir þá sem það kjósa. Á einungis við lengstu vegalengd (24 km.). Þátttakendur í opnu starti fá tímann sinn skráðan en geta ekki unnið til verðlauna/stiga í Hermanns-/Íslandsgöngunni.

12 km. fyrir 12 ára og eldri. Skráningargjald 3.000 kr. til og með 19. janúar, eftir það hækkar skráningargjald í 4.000 kr. Skráningu lýkur 24. janúar kl. 21:00.

4 km. ekkert aldurstakmark. Skráningargjald 1.000 kr. Skráningu lýkur 24. janúar kl. 21:00.

Allir þátttakendur í öllum flokkum fá viðurkenningarpening að launum.

Dagskrá og allar nánari upplýsingar inn á facebook- síðu Hermannsgöngunnar

Skráning er hafin á netskraning.is og um að gera að skrá sig og hafa gönguna sem fyrsta markmið vetrarins.

Velkomin í Hlíðarfjall!