Fyrsta bikarmóti ársins í skíðaskotfimi var haldið í Hlíðarfjalli um helgina.

Skotsvæði við gönguhús í Hlíðarfjalli.
Ljósmyndari: Anastasiia Leonova Kramarenko.
Skotsvæði við gönguhús í Hlíðarfjalli.
Ljósmyndari: Anastasiia Leonova Kramarenko.

Það var ekki aðeins keppt í skíðaskotfimi á Ólympíuleikunum á Ítalíu um helgina, heldur einnig í Hlíðarfjalli þar sem yfir 30 þátttakendur voru með á fyrsta bikarmóti ársins í skíðaskotfimi, þar sem keppt var með laser rifflum. Þátttakendur komu frá Skíðafélagi Akureyrar, Skíðafélagi Strandmanna, Skíðafélaginu Ulli og Skíðafélagi Ólafsfjarðar. Á laugardag var keppt í "Super sprint" þar sem keppendur urðu að ganga refsihringi fyrir þau skot sem geyguðu en í dag sunnudag var svokölluð "Short individual" keppni þar sem keppendur fengu tímarefsingu sem bættist við heildartíma þeirra, fyrir þau skot sem ekki hittu í mark. Yngstu keppendurnar skutu aðeins liggjandi en þeir sem eldri voru skutu ýmist liggjandi eða standandi. Keppt var í 4 aldurs flokkum um helgina 11-13 ára, 14-15 ára, 16-35 ára og 36 ára og eldri og gengnar voru mismunandi vegalengdir eftir aldri, allt frá 3x800 metrum í yngstu flokkunum yfir í 5x1 kílómetra í eldri flokkum.

Sigurvegari í 11-13 ára flokki drengja, báða dagana var Halldór Logi Óskarsson, SFS og í flokki stúlkna 11-13 ára sigraði systir hans Ísafold Lilja Óskarsdóttir, SFS. Í flokki 14-15 ára stráka bar Jökull Ingimundur Hlynsson, SFS sigur úr býtum og Viktoría Rós Guseva, SKA í flokki stúlkna. Í 16-35 ára flokki sigraði Þórey Dögg Ragnarsdóttir, SFS fyrri daginn, en Vala Kristín Georgsdóttir, Ulli seinni daginn. Matas Zalneravicius, SFS vann sinn flokk báða dagana. Þar sem aðeins ein kona eldri en 36 ára var skráð til leiks voru flokkar kvenna eldri en 16 ára sameinaðir. Í flokki 36 ára og eldri karla, sigraði Ragnar Kristinn Bragason, SFS báða dagana.

Að sögn mótsstjóra, Veroniku Guseva, Skíðaskotfiminefnd SKÍ, gekk mótið mjög vel fyrir sig og keppendur voru almennt ánægðir með mótið og framkvæmd þess. 

Heildarúrslit mótsins má finna á hér.