Frábær dagur í fjallinu í dag þar sem Íslandsmeistarar í stórsvigi voru krýndir á Skíðamóti Íslands í alpagreinum

Í dag var keppt í stórsvigi á Skíðamóti Íslands í alpagreinum í Hlíðarfjalli.

Veður var eins og best verður á kosið, sól skein í heiði og loftið hreyfðist ekki. Um stund var sem maður væri staddur á sólarströnd og halda mætti að æðri máttarvöld hafi haft sitthvað að segja eftir sveiflukennt veðurfar síðustu viku.

Keppnin átti upphaflega að hefjast kl. 10 í morgun en sökum mikillar ofankomu í gærkvöldi og í nótt var mótinu frestað til kl. 12. Troðaramenn Hlíðarfjalls stóðu í ströngu í morgun við að slétta úr skaflamyndun næturinnar og tókst vel til.

Brautaraðstæður voru þó erfiðar og var heill her brautarstarfsmanna mættur til að skafa brautina og sjá til þess að hún væri eins og best verður á kosið. Sagan segir að sjaldan, eða aldrei, hafi jafn margir gulklæddir sjálfboðaliðar sést í brekkunum á einum og sama deginum í Hlíðarfjalli. 

Sem fyrr var keppt í Karla- og kvennaflokki sem og U18-KK og U18-KVK. Úrslit mótsins má nálgast á Mótaskrá SKÍ.

Líkt og í gær gáfu 66°Norður aukaverðlaun fyrir sigurvegara allra flokka og Fjallið aukaverðlaun fyrir 2. og 3. sæti í fullorðinsflokkum.

Hér að neðan eru myndir frá verðlaunaafhendingu dagsins

Kvennaflokkur

1. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)

2. Þórdís Helga Grétarsdóttir (VÍK)

3. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)

Flokkur U18-KVK

1. Hrefna Lára Zoega (UÍA)

2. Rakel Lilja Sigurðardóttir (UÍA)

3. Ásta Kristín Þórðardóttir (ÁRM)

Flokkur U18-KK

1. Arnór Alex Arnórsson (KR)

2. Hrafnkell Gauti Brjánsson (ÁRM)

3. Óskar Valdimar Sveinsson (DAL)

Karlaflokkur

1. Gauti Guðmundsson (KR)

2. Matthías Kristinsson (SÓ)

3. Jón Erik Sigurðsson (Fram)

Við óskum sigurvegurum innilega til hamingju en sérstakar hamingjuóskir fær okkar kona, Sonja Lí - nýkrýndur Íslandsmeistari í stórsvigi.

Að auki voru veitt verðlaun fyrir alpatvíkeppni - samanlagðan árangur í svigi og stórsvigi.

Úrslit voru sem hér segir:

Í flokki U18-KK: 1. Óskar Valdimar Sveinsson (DAL) 2. Hrafnkell Gauti Brjánsson (ÁRM) 3. Kári Freyr Orrason (ÁRM)

Í karlaflokki: Gauti Guðmundsson (KR) 2. Matthías Kristinsson (SÓ) 3. Jón Erik Sigurðsson (Fram)

Í flokki U18-KVK: 1. Sólveig Sigurjóna Hákonarsóttir (UÍA) 2. Viktoría Björk Harðardóttir (BBL) 3. Ásta Kristín Þórðardóttir (ÁRM)

Í kvennaflokki: 1. Þórdís Helga Grétarsdóttir (VÍK) 2. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA) 3. Eyrún Erla Gestsdóttir (VÍK)

Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Eftir dag sem þennan ber að þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg - án þeirra væri nær ómögulegt að halda slíkt mót, við þökkum einnig starfsmönnum Hlíðarfjalls fyrir sína vinnu á krefjandi tímum.

Að lokum þökkum við keppendum fyrir frábæran dag og óskum nýkrýndum Íslandsmeisturum í stórsvigi innilega til hamingju. Við í SKA erum stolt af okkar konu.

Á morgun er á dagskrá keppni í samhliðasvigi og ljóst að mikil stemmning verður í fjallinu.