.
Bikarmót í alpagreinum fyrir 12-15 ára fer fram í Bláfjöllum um helgina og á Skíðafélag Akureyrar þar flottan hóp keppenda.
Í dag, 14.mars, var keppt í stórsvigi við afbragðs aðstæður og voru skíðuð tvö mót.
Keppendur SKA stóðu sig vel í dag og náðu nokkur þeirra á verðlaunapall.
Hér að neðan eru myndir frá verðlaunaafhendingum sem og yfirlit yfir tímatöku.
Í flokki 12-13 ára drengja var Elvar Magni Þorvaldsson SKA í 2. sæti á fyrri móti dagsins og gerði sér svo lítið fyrir og sigraði það síðara.
Í flokk 12-13 ára stúlkna var Hekla Sól Helgadóttir í 5. sæti á fyrra móti dagsins og í 3. sæti á því síðara.
Í flokki 14-15 ára drengja var Friðrik Kjartan Sölvason SKA í 2. sæti á fyrra móti dagsins og í 3. sæti á því síðara.
Í flokki 14-15 ára stúlkna sigraði Sylvía Mörk Kristinsdóttir SKA síðara mót dagsins
Skv. dagskrá átti keppni í svigi að fara fram á morgun. Svigkeppninni hefur hins vegar verið aflýst vegna þess að von er á vonskuveðri sunnan heiða.
Pósthólf 346 - 602 Akureyri
kt. 480101-3830
Banki Íslandsbanki
Reikningur nr. 0565-26-5099
skaakureyri@gmail.com
.