Bikarmót & FIS mót á snjóbrettum í Hlíðarfjalli 10.-11. febrúar

Bikarmót SKÍ (FIS) fer fram í Hlíðarfjalli á Akureyri dagana 10.-11. febrúar 2024 

Keppendur úr öllum félögum eru boðnir velkomnir. Keppt verður í Slopestyle og Big Air

 

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

 

U9 2015 og síðar

U11 

2013 – 2014

U13 

2011 – 2012

U15 (FIS, SBS) 

2009 - 2010

U17 (FIS, SBS, SBX) 

2007 - 2008

Fullorðinsflokkur (FIS, SBS, SBX) 

2006 og fyrr

 

Föstudagur 9. febrúar

17.00 Æfingar í Hlíðarfjalli 

19.00 Æfingum lýkur

20.00 Fararstjórafundur á skrifstofu SKÍ

 

Laugardagur 10. febrúar SLOPESTYLE

09.30 FIS keppendur mæta upp í Hlíðarfjall. Fundur með dómurum og mótstjóra í veitingasal.

Rásnúmer afhent, farið yfir dagskrá mótsins, Plan B. 

10.00 Æfingar hefjast 

10.45 Æfingum lýkur 

11.00 Keppni hefst í Slopestyle fyrir FIS keppendur. Farnar verða TVÆR ferðir. Betri ferðin gildir. 

Verðlaunaafhending fer fram við Strýtuskála eftir að móti lýkur.

 

13.15 Fundur með keppendum

13.30 Æfingar hefjast fyrir U9-U13

14.00 Keppni hefst í Slopestyle fyrir U9-U13. Farnar verða TVÆR ferðir. Betri ferðin gildir.

Verðlaunaafhending fer fram við Skíðastaði eftir að móti lýkur.

 

Sunnudagur 11. febrúar BIG AIR

09.30 Keppendur mæta upp í Hlíðarfjall. Stuttur fundur fyrir alla keppendur í veitingasal.

10.00 Æfingar hefjast 

10.45 Æfingum lýkur 

11.00 Keppni hefst í BIG AIR. Farnar verða TVÆR ferðir. Betra stökkið gildir. 

Verðlaunaafhending fer fram við Skíðastaði eftir að móti lýkur.

 

Skráning fer fram í mótakerfi SKÍ https://mot.ski.is/vidburdur/358 og er skráningarfrestur til miðvikudagsins 7. febrúar.

 

Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá. Allar upplýsingar um breytingar koma inn á WhatsApp grúbbu mótsins: https://chat.whatsapp.com/LO8T1OQiL1YDpIQHoy4cCK  Fyrirspurnum svarar Margrét í síma 869-4021. 

 

Smelltu hér til að fylgjast með stigagjöf á mótinu.

 

Brettadeild SKA