Bikarmót á snjóbrettum um liðna helgi heppnaðist vel

Bikarmót Skíðasambands Íslands var haldið í Hlíðarfjalli helgina 11. - 12.mars í frábæru veðri.

Mótið var jafnframt FIS mót sem upphaflega átti að vera í febrúar en hefur verið frestað endurtekið vegna veðurs og snjóleysis. Alls mættu 37 keppendur frá Tindastóli, Dalvík, BFH og SKA á aldrinum 7 - 19 ára.

Aðstæður í Suðurgilinu voru til fyrirmyndar en mikil vinna var lögð í parkið dagana og næturnar fyrir mót og kunnum við starfsfólki Hlíðarfjalls, þjálfurum SKA og BFH og öllum sjálfboðaliðum sérstakar þakkir fyrir. Keppt var í tveimur greinum, Slopestyle og Big air í flokkunum U9, U11, U13, U15, U17 og fullorðinsflokki. Hver keppandi fór 2 ferðir í hvorri grein og gilti sú betri.

Mótið var hið fyrsta á árinu en næsta mót er fyrirhugað í Bláfjöllum helgina 15. - 16. apríl en miðað við snjóalög og veðurfar sunnan heiða eru líkur á að mótið verði aftur haldið fyrir norðan. Meira um það síðar. SKA þakkar öllum fyrir komuna í Hlíðarfjall og hlakkar til áframhaldandi samstarfs allra starfandi brettadeilda.

Brettadeild SKA