Andrésarskólinn hefst mánudaginn 14. mars!

SKA býður nýjum krökkum að koma og byrja að æfa snjóbretti, gönguskíði eða alpagreinar - og fá að keppa á Andrésarleikunum þegar tímabilinu lýkur. Upplagt fyrir krakka sem hafa verið að prófa sig aðeins áfram í vetur og hafa farið á skíði eða snjóbretti, byrjendur eru að sjálfsögðu líka velkomnir! 

Skráning fer fram í gegnum Sportabler appið - Andrésarskólinn kostar 18.000 krónur en þá er innifalið kort í fjallið út tímabilið (ef þarf), æfingar sem eftir eru fram að Andrés og keppnisgjaldið á Andrés. Ef börnin eiga nú þegar vetrarkort í fjallið dregst það EKKI frá gjaldinu. Í Sportabler appinu er hægt að ganga frá greiðslu og nýta frístundastyrk ef fólk vill. 

Facebooksíða og upplýsingasíða alpagreina 8 ára og yngri - Upplýsingar um eldri flokka á www.skidi.is - SKRÁNING HÉR 

Facebooksíða og upplýsingasíða snjóbretta - allur aldur. SKRÁNING HÉR

Facebooksíða skíðagöngu og upplýsingasíða - allur aldur. SKRÁNING HÉR

Yfirlit yfir æfingatíma eru hér á þessari síðu. 

Það má líka setja sig í samband við eftirfarandi aðila sem gefa góðfúslega upplýsingar um æfingar hjá SKA. 

  • Rebekka - snjóbretti - 8522161

  • Veronika - skíðaganga - 6638152

  • Þóra Ýr Sveinsdóttir - alpagreinar - 8644757

Hlökkum til að sjá sem flesta 

SKA 

Öll samskipti við þjálfara og tilkynningar um hvort æfingar falli niður eða ef einhverjar breytingar verða eru í Sportabler. Þjálfarar er líka í samskiptum á Facebook síðum deildanna - á meðan að við erum að tryggja að allir séu komnir inn í Sportabler.