Andrésarskólinn hefst laugardaginn 23. mars!

SKA býður nýjum krökkum að koma og byrja að æfa snjóbretti, gönguskíði eða alpagreinar - og fá að keppa á Andrésarleikunum þegar tímabilinu lýkur. Upplagt fyrir krakka sem hafa verið að prófa sig aðeins áfram í vetur og hafa farið á skíði eða snjóbretti, byrjendur eru að sjálfsögðu líka velkomnir! 

Skráning fer fram í gegnum Abler appið - Andrésarskólinn kostar 25.000 krónur en þá er innifalið kort í fjallið út tímabilið (ef þarf), æfingar sem eftir eru fram að Andrés og keppnisgjaldið á Andrés. Ef börnin eiga nú þegar vetrarkort í fjallið dregst það EKKI frá gjaldinu. Í abler appinu er hægt að ganga frá greiðslu og nýta frístundastyrk ef fólk vill og vera í samskiptum við þjálfara. 

Yfirlit yfir æfingatíma eru hér á þessari síðu. Fyrstu æfingarnar hefjast í næstu viku frá og með laugardeginum 23. mars og svo hvað hentar hverjum og einum. 

Það má líka setja sig í samband við eftirfarandi aðila sem gefa góðfúslega upplýsingar um æfingar hjá SKA. 

  • Berglind - snjóbretti - 8668707

  • Kári - skíðaganga - 8463475

  • Matthildur Rún - alpagreinar - 6950282

Hlökkum til að sjá sem flesta 

SKA 

Öll samskipti við þjálfara og tilkynningar um hvort æfingar falli niður eða ef einhverjar breytingar verða eru í Abler.