SKA auglýsir eftir alpagreinaþjálfurum

Skíðafélag Akureyrar auglýsir eftir þjálfurum fyrir alla flokka félagsins í alpagreinum. Skilyrði er að þjálfarar hafi reynslu af þjálfun og séu með þjálfaramenntun frá SKÍ, eða sæki sér menntun á tímabilinu. 

16 ára og eldri:

• Óskað er eftir þjálfara og aðstoðarþjálfara

• 2018-2019 voru æfingar alla virka daga kl. 17:00-19:00 og laugardaga kl. 10:00-12:00
• Þjálfarar þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 1. nóvember 2019

12 - 15 ára:
• Óskað er eftir þjálfara og aðstoðarþjálfara
• 2018-2019 voru æfingar fjóra virka daga kl. 17:00-19:00 og laugardaga kl. 10:00-12:00
• Þjálfarar þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 1. desember 2019

9 - 11 ára:
• Óskað er eftir þjálfara og aðstoðarþjálfara
• 2018-2019 voru æfingar þrjá virka daga kl. 17:00-19:00 og laugardaga kl. 10:00-12:00
• Þjálfarar þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 1. desember 2019

8 ára og yngri:
• Óskað er eftir þjálfara og tveimur aðstoðarþjálfurum
• Aðstoðarþjálfarar skulu hafa reynslu af þjálfun eða skíðakennslu, eða keppni
• 2018-2019 voru æfingar tvo virka daga kl. 17:15-18:45 og laugardaga kl. 10:00-12:00
• Þjálfarar þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 1. janúar 2019

Upplýsingar veitir Jón Ingvi Árnason, formaður alpagreinanefndar, s. 821 2064, skaalpa@gmail.com.
Umsókn ásamt ferilskrá óskast send til skaalpa@gmail.com, eigi síðar en 20. maí 2019.

Alpagreinanefnd SKA