Akureyrar-sprellmót hjá 4-6 ára hópnum var haldið í Hólabraut í morgun

Eldsnemma í morgun, sunnudaginn 15. mars, var haldið afar skemmtilegt Akureyrar-sprellmót fyrir yngstu iðkendur SKA í Hólabraut. Um ræðir unga og efnilega skíðasnillinga á aldrinum 4-6 ára(2019-2021).

Skyggnið uppi í brekkunum í morgun, veður og vindar myndu ekki kallast draumaaðstæður til skíðaiðkunar en undirritaður getur vottað fyrir það að það hafði ekki svo mikið sem minnstu áhrif á stemmninguna í hópnum. Brautin var ævintýri líkust - það sást glitta í okkar einlæga Andrés Önd sem við í SKA dýrkum og dáum, skíða þurfti undir stangir hér og þar og gefa lifandi snúningsfígúrum fimmu svo ekki sé meira sagt. Tónlistin ómaði og öflugur hópur foreldra sá til þess að stemmningin væri lifandi og að kuldanum væri ekki gefinn minnsti gaumur.

Í heildina voru mættir til leiks 41 þátttakandi og fengu allir veglegan verðlaunapening um hálsinn að móti loknu. 

Sprellmótið heppnaðist einstaklega vel og stoltið skein úr andliti hvers þátttakenda að móti loknu. Sigurvegarar öll sem eitt. 

SKA þakkar að vanda öllum þátttakendum og foreldrum þeirra fyrir vel heppnað mót.

Hér að neðan eru nokkrar myndir úr brekkunni í morgun.