Æfingaferð tvö hjá 16+ hafin í Idre í Svíþjóð

Næstu daga verður 16+ hópurinn okkar við æfingar í Idre í Svíþjóð. Þetta er önnur æfingaferð vetrarins og mun standa yfir frá 8.-19. nóvember. 

Líkt og fram kom í frétt um fyrstu ferð hópsins til Osló, þá verður skíðað á snjó sem var geymdur frá því síðasta vor og ýtt út núna í haust. Það þarf ekki mikið til að byrja og ná góðum æfingum fyrst á haustin.

Framundan eru spennandi dagar og óskum við krökkunum góðrar skemmtunar og góðs gengis.