66°NORTH CUP lauk í dag með tveimur stórsvigsmótum

Í dag lauk hinu stórbrotna 66°NORTH CUP í Hlíðarfjalli. Fram fóru tvær stórsvigskeppnir vegna þess að fresta þurfti keppni í gær eins og fram hefur komið.

Veðrið var svo sannarlega með okkur í liði í dag og fór keppnin fram í sól og blíðu í Suðurbakkanum. Aðstæður voru til fyrirmyndar en upphitun keppenda í morgun fólst meðal annars í því að skafa lausan snjó úr bakkanum. 

Allt gekk vel fyrir sig og almenn ánægja var með daginn.

Úrslit tímatöku má sem fyrr nálgast á heimasíðu FIS og í Mótakerfi SKÍ

Nú er 66°NORTH CUP formlega lokið en skíðaveislan er rétt að byrja. Kærkomin hvíld framundan á morgun en svo hefst Skíðamót Íslands í alpagreinum á föstudaginn.

SKA þakkar öllum keppendum, þjálfurum og öllum sjálfboðaliðunum sem komu að mótinu kærlega fyrir flott mót. Það verður ekki sagt nægilega oft hversu ríkt SKA er af öflugu fólki. Hjálpin einskorðaðist þó ekki við SKA heldur var það mikilli samstöðu, allra sem sóttu mótið, að þakka að hlutirnir gengu vel fyrir sig.

Að lokum þakkar SKA 66°Norður fyrir að taka þátt í þessari veislu með okkur, með von um frekara samstarf í náinni framtíð. Þess má geta að 66°Norður kemur einnig að Skíðamóti Íslands í alpagreinum og styrkir mótið með veglegum aukaverðlaunum.

Hér að neðan eru myndir frá verðlaunaafhendingum beggja móta. Veitt voru verðlaun fyrir Karla- og kvennaflokk sem og fyrir U18-KK og U-18KVK. SKA óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju.

Verðlaunaafhending fyrir fyrra stórsvigsmótið

u18kvk

Flokkur U18-KVK

1. Hrefna Lára Zoega (UÍA)

2, Rakel Lilja Sigurðardóttir (UÍA)

3. Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir (UÍA)

kvk

Kvennaflokkur

1. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)

2. Þórdís Helga Grétarsdóttir (VÍK)

3. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)

Flokkur U18-KK

1. Arnór Alex Arnórsson (KR)

2. Herman Brudvik Soerensen (Noregur)

3. Ruben Loos (Holland)

kk

Karlaflokkur

1. Gauti Guðmundsson (KR)

2. Carl Ottosson (Bandaríkin)

3. Jón Erik Sigurðsson (Fram)

 

Verðlaunaafhending fyrir seinna stórsvigsmótið

u18kvk

Flokkur U18-KVK

1. Hrefna Lára Zoega (UÍA)

2. Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir (UÍA)

3. Rakel Lilja Sigurðardóttir (UÍA)

kvk

Kvennaflokkur

1. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)

2. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)

3. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (ÁRM)

Flokkur U18-KK

1. Arnór Alex Arnórsson (KR)

2. Ruben Loos (Holland)

3. Herman Brudvik Soerensen (Noregur)

Karlaflokkur 

1. Gauti Guðmundsson (KR)

2. Matthías Kristinsson (SÓ)

3. Jón Erik Sigurðsson (Fram)