66°NORTH CUP fór af stað í Hlíðarfjalli í dag

Barði Westin var á myndavélinni uppi í fjalli í dag
Barði Westin var á myndavélinni uppi í fjalli í dag

Líkt og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni sem og annars staðar fer nú fram stórt alþjóðlegt skíðamót uppi í Hlíðarfjalli og mun standa yfir fram á miðvikudag. Aðalstyrktaraðili mótsins er 66°Norður og hefur mótið því verið nefnt 66°NORTH CUP.

Fyrsti keppnisdagur er nú að kveldi kominn og gekk dagurinn vel fyrir sig þrátt fyrir drjúga ofankomu á köflum. Brautirnar létu á sjá en það var gríðarlega öflugur hópur sjálfboðaliða úr mörgum skíðafélögum sem lagðist á eitt og sá til þess að allt gengi skv. áætlun.

Sjálfboðaliðar að störfum í dag

Á dagskrá í dag voru tvö svigmót, fyrir og eftir hádegi. 

Hér að neðan eru myndir frá verðlaunaafhendingunni að móti loknu. Veitt voru verðlaun í Karla- og Kvennaflokki sem og fyrir U-18 KK og U-18 KVK.

Verðlaunaafhending fyrir fyrra svigmót dagsins

KVK

Kvennaflokkur

1. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)

2. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)

3. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (ÁRM)

u18kvk

Flokkur U18-KVK

1. Rakel Lilja Sigurðardóttir (UÍA)

2. Linda Mjöll Guðmundsdóttir (ÁRM)

3. Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir (UÍA)

karlaflokkur

Karlaflokkur

1. Bjarni Þór Hauksson (VÍK)

2. Gauti Guðmundsson (KR)

3. Carl Ottosson (Bandaríkin)

u18kk

Flokkur U18-KK

1. Arnór Alex Arnórsson (KR)

2. Kári Freyr Orrason (ÁRM)

3. Óskar Valdimar Sveinsson (DAL)

 

Verðlaunaafhending fyrir seinna svigmót dagsins

kvennaseinni

Kvennaflokkur

1. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)

2. Eyrún Erla Gestsdóttir (VÍK)

3. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (ÁRM)

u18kvkseinna

Flokkur U18-KVK

1. Hrefna Lára Zoega (UÍA)

2. Viktoría Björk Harðardóttir (BBL)

3. Katrín María Jónsdóttir (UÍA)

kkseinna

Karlaflokkur

1. Matthías Kristinsson (SÓ)

2. Jón Erik Sigurðsson (Fram)

3. Nick Zondag (Holland)

u18kkseinna

Flokkur U18-KK

1.Kári Freyr Orrason (ÁRM)

2. Óskar Valdimar Sveinsson (DAL)

3. Herman Brudvik Soerensen (Noregur)

 

 

Úrslit tímatöku beggja móta má nálgast á heimasíðu FIS sem og í Mótakerfi SKÍ

Skíðafélag Akureyrar þakkar keppendum fyrir daginn og óskar sigurvegurum til hamingju. Við viljum einnig koma til skila þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg í dag - mikil samstaða ríkti meðal manna um að láta daginn ganga vel - óháð félagi. Slíkt er ómetanlegt.