Landvættir SKA

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Landvætta prógrammi Skíðafélagsins. Skráning er hafin og fer fram á heimasíðu Skíðafélagsins í gegnum Sportabler. Meginmarkmið er að efla lýðheilsu, hafa gaman og mynda liðsheild. Landvættaþjálfarateymið mynda Freydís Heba Konráðsdóttir er yfirþjálfari og heldur utanum sameiginlegar æfingar. Hafdís Siguðardóttir sund- og hjólreiðaþjálfari og Sigrún María Bjarnadóttir skíðagönguþjálfari eru með Freydísi í þjálfarateyminu. Kristrún Lind Birgisdóttir sér um umsýslu, skráningu og utanumhald. 

Landvættaprógramm SKA undirbýr verðandi Landvætti undir þátttöku í hálfum eða heilum landvætti. Æfingaprógrammið hentar einnig fyrir þá sem vilja taka enn lengri tíma og klára eina þraut á ári í fjögur ár eða svokallaðan Langvætt. Þú verður Landvættur með því að ljúka eftirfarandi þrautum á innan við 12 mánuðum eða hálfur Landvættur með því að ljúka hálfri vegalengd allra þrautanna. Sjá nánar á Landvætta síðunni .

  • Vesturhluti: Fossavatnsgangan, 50 km eða NæturFossavatnið lengri vegalengd, skíðaganga á Ísafirði.

  • Norðurhluti: Jökulsárhlaupið, 32.7 km hlaup frá Dettifossi til Ásbyrgis eða Þorvaldsdalsskokkið um 25 km óbyggðahlaup eftir endilöngum Þorvaldsdal í Eyjafirði.

  • Austurhluti: Urriðavatnssundið, 2.5 km sund í Urriðavatni nálægt Fellabæ.

  • Suðurhluti: Blue Lagoon Challenge, 60 km hjólreiðar frá Hafnarfirði.

Landvættir SKA 

Landvættahópur SKA er opinn æfingahópur sem hefur sett sér það markmið að hljóta nafnbótina “Landvættur”.  Æfingaferlið gerir ráð fyrir að allir geti náð markmiðum sínum, byrjendur jafnt sem lengra komna. Landvættahópur SKA er hugsaður fyrir þá sem þurfa stuðning við að koma sér af stað og/eða vantar utanumhald og félagsskap. Lagt er upp með fjölbreytta hreyfingu úti í náttúrunni í bland við sérhæfðari undirbúning fyrir landvættaþrautirnar fjórar. Æfingaprógrammið tekur mið af hverri þraut og undirbýr hópinn fyrir þátttökuna öruggum skrefum á 10 mánaða tímabili.  

Einu sinni í viku á þriðjudögum verður sameiginleg æfing en þess á milli fá þátttakendur æfingaáætlanir til þess að vinna eftir sem hentar hverju getubili. 

Landvættaprógramm SKA kostar 150.000 kr fyrir þá sem eru með allan tímann (hægt er að dreifa greiðslum í 9 mánuði). Hægt er að slást í hópinn hvenær sem er og taka þátt með hópunum við undirbúning einstakra þrauta. Sjá nánar á Sportabler.  

  • Fallegur liðsheildar jakki og buxur frá Cintamani er innifalið í þátttökugjaldinu (hægt að sleppa buxum 130.000 kr). 

  • Þátttaka í Hermannsgöngu Skíðafélagsins er innifalin. 

  • Um það bil 50 hlaupa/göngu, gönguskíða, sund og hjólaæfingar. 

  • Æfingaprógram, stuðningur og utanumhald í Sportabler 

  • Fjórir fræðslufyrirlestrar - hver um sig með áherslu á hverja þraut. Í kjölfar fyrirlestranna verða vinnustofur þar sem þátttakendur innleiða þau ráð sem sérfræðingar gera með því að endurskoða sínar eigin áætlanir. 

  • Stuðningur, pepp og aðhald allt tímabilið. 

  • Armbönd og viðurkenning fyrir hverja þraut. 

  • Sérkjör SKA, afslættir og kynningar á búnaði. 

Þess utan verða farnar tvær helgarferðir þar sem sjónum er beint að tveimur þrautum í hverri ferð, annarsvegar sundi og hjólreiðum og hins vegar hlaupum og skíðagöngu. Nánar upplýst síðar hvert verður farið en líklega á Hólavatn og á Árskógsströnd. 

Afsláttur og stuðningur frá fyrirtækjum 

Allir sem taka þátt í Landvættaprógrammi gerast félagar í Skíðafélaginu og njóta þeirra sérkjara sem Skíðafélaginu bjóðast. Landvættahópi SKA fá einnig kynningu á búnaði frá fyrirtækjum og söluaðilum tengdum félaginu. Slíkir viðburðir verða tilkynntir inn á Sportabler á tímabilinu. 

Hlökkum til að sjá sem flesta á kynningarfundinum þar sem nánari upplýsingar verða veittar 

Stjórn SKA 

skaakureyri@gmail.com