|
Mánudagur, 06. september 2010 22:34 |
|
Skráning á Kópaþrek 1.-3. október nk. er í fullum gangi og hvetjum við alla til að skrá sig sem fyrst. Þetta verður bara gaman 
Dagskrána og aðrar upplýsingar má sjá hér fyrir neðan:
http://kopathrek.blog.is/blog/kopathrek/ |
|
Guðmundur Sigurjónsson þjálfar kvennalandsliðið. |
|
Mánudagur, 06. september 2010 22:12 |
|
SKI hefur ráðið Guðmund Sigurjónsson til þess að hafa umsjón með þjálfun og verkefnum landsliðshóps kvenna og æfingahóps kvenna. Guðmundur mun starfa í samráði við landsliðsþjálfara SKÍ, Ånen Giverhaug.
Guðmundur hefur langa reynslu sem þjálfari, bæði með félagsliðum, lengst af hjá SKA og liðum Skíðasambandsins en Guðmundur var landsliðsþjálfari á árunum 1997 til 1998. Guðmundur er eins og við flest vitum faðir Írisar og Maríu, en þær eru báðar í landsliðinu, og er hann ásamt eiginkonu sinni og syni búsettur í Kongsberg í Noregi.
Óskum við Guðmundi alls góðs svo og stelpunum "okkar"
Kveðja frá SKA. |
|
Bjarni Th Bjarnason ráðin framkvæmdastjóri Dönsk Alpin. |
|
Mánudagur, 06. september 2010 22:02 |
|
„Nýlega var Bjarni Th. Bjarnason, viðskiptafræðingur MBA og skíðaþjálfari, ráðinn sem framkvæmdastjóri Dönsk Alpin skíðamenntaskólans í Akerhusfylki í Noregi. Skólinn nýtur virðingar í Noregi fyrir að hafa skilað flestum af betri skíðamönnum inn í afrekslið á vegum norska skíðasambandsins á undanförnum árum. Skólinn er samstarfsverkefni Akershusfylkis og Bærum Skiklubb og hefur verið rekinn í 8 ár. Hlutverk skólans er að gefa skíðamönnum kost á að stunda sína íþrótt samhliða námi. Markmiðið er að stuðla að því að skíðamenn frá Dönski Alpin fari alla leið í sinni íþrótt og keppi í heimsbikarnum í alpagreinum. Bjarni er vel kunnugur í íslenska skíðaheiminum og hefur starfað sem þjálfari fyrir ýmsa íslenska skíðahópa jafnt á Íslandi sem erlendis á undanförnum árum. Sonur Bjarna, Jakob Helgi, er nýbyrjaður í námi í sama skóla. Til hamingju með nýja starfið Bjarni. (ski.is) |
|
Föstudagur, 03. september 2010 14:17 |
|
Haustæfingar hjá skíðakrökkunum eru að byrja og verður fyrsta æfingin n.k. sunnudag kl. 11 í Kjarnaskógi. Í tilefni af þessu þá birtist viðtal við Ólaf Björnsson, skíðagönguþjálfara í N4 og má sjá það á þessari slóð. http://www.n4.is/tube/file/view/1198/
|
|
Fimmtudagur, 02. september 2010 21:25 |
|
Vefstjóri SKA
Auglýst er eftir áhugasömum einstaklingi sem er tilbúinn til þess að setja inn fréttir og upplýsingar um viðburði inn á vefsíðu SKA. Vefsíða SKA er mikilvægur upplýsingamiðill fyrir iðkendur, foreldra og aðra áhugasama um skíðaiðkun. Markmiðið er að halda vef SKA sem lifandi og skemmtilegum miðli með upplýsingagildi að leiðarljósi.
Áhugasamir hafi samband við formann SKA, Hildigunni Svavarsdóttur í síma 8600588 |
|
|
|
|
Síða 1 af 226 |