|
Myndir frá 35. Andrésarandar leikunum. |
|
Þriðjudagur, 27. apríl 2010 21:27 |
Á meðfylgjandi slóð má sjá frábærar myndir af Andrésarleikunum 2010 sem Benedikt pabbi Helgu 11.ára hjá SKA tók á meðan á leikunum stóð.
|
|
35. Andrésarandar leikunum lokið. |
|
Laugardagur, 24. apríl 2010 20:32 |
Þá er Andrés lokið þetta árið. Mótshaldarar eru í sjöunda himni yfir því hversu allt gekk vel og senda bestu þakkir til allra sem hjálpuðu til. Starfsmenn unnu sem einn maður frá upphafi til enda og sannaðist máltækið sem við höfum notað svo mikið í vetur "margar hendur vinna létt verk" Ekki er því síður að þakka hversu veðrið var gott alla leikana og eflaust einnig þess vegna mátti sjá litil brosandi andlit hvert sem litið var í Hlíðarfjalli. N4 var með skemmtilega útsendinu í gær föstudag þar sem spjallað var við hressa keppendur og greinilega mátti sjá og heyra að ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega.
Nú þegar keppendur og aðrir gestir halda heim á leið og mótshaldarar komast í langþráða sturtu og kannski smá blund er við hæfi að óska öllum góðrar heimferðar og við hlökkum til að sjá ykkur öll að ári á 36. Andrésarleikunum.
Móta- og Andrésarnefnd. |
|
|
Lokahóf fyrir starfsmenn Andrés. |
|
Laugardagur, 24. apríl 2010 10:43 |
|
Lokahóf fyrir starfsmenn Andrésarleikanna og foreldra barna í SKA í kvöld kl. 21.00 á Pósthúsbarnum. Allir sem starfað hafa við leikana og hafa náð 20 árum eru velkomnir. Léttar veitingar í boði.
Aðrir starfsmenn þ.e. 15-20 ára er boðið á Bryggjuna í Pizzuveislu kl. 21:00 í kvöld.
Móta- og andrésarnefnd.
Lokahóf |
|
Keppni hafin í dag laugardag. |
|
Laugardagur, 24. apríl 2010 10:29 |
|
Þá er keppni hafin á Andrésarandar leikunum í dag laugardag. Veðrið leikur viðokkur glampandi sól, logn og við frostmark. Fyrri ferð er lokið hjá 11 ára í stórsviginu og seinni ferð hafin. Fyrri ferð er einnig lokið í sviginu hjá 13-14 ára. Í Andrésarbrekkunni er einnig hafin keppni og leikjabraut hjá 7 ára í Ævintýraleiðinni. |
|
|
Föstudagur, 23. apríl 2010 22:26 |
|
Á verðlaunaafhendingunni fyrr í kvöld föstudagskvöld, voru eftirfarandi númer dregin út í happadrætti Andrésar andar:
5 gjafabréf frá Útilíf og Cintamani : nr. 7907, 7961, 7399, 7743, 7814.
4 gjafabréf á 12 vikna áskrift að Andrésarandarblöðum frá Eddu: nr. 7424, 7896, 7984, 7964, 8069.
Vinninga er hægt að vitja á verðlaunaafhendingu á laugardag hjá Óskari í ræðupúltinu.
Til hamingju vinningshafar og allir að muna að taka happdrættismiðana með á verðlaunaafhendinguna á laugardag. |
|
Lokadagur á Andrés á morgun laugardag. |
|
Föstudagur, 23. apríl 2010 20:08 |
|
Um leið og við óskum Andrésarmeisturum dagsins til hamingju svo og öðrum keppendum fyrir góða keppni er rétt að minnast á að veðurspáin á morgun er ekki síðri en veðrið var í dag. 2°c hiti, S-A 3m á sek og glampandi sól. Nú er um að gera að muna eftir sólvörninni.
Keppni hefst á morgun kl. 9:00 með keppni í svigi hjá 13-14 ára og kl. 10 keppa 7 ára stúlkur í leikjabraut, 7 ára drengir í stórsvigi og 11 ára einnig í stórsvigi. Gangan hefst svo kl. 11.00 með keppni hjá 8 ára og yngri í þrautabraut og 11.45 9-14 ára allir í boðgöngu.
Verðlaunaafhending og mótsslit verða svo í íþróttahöll kl. 15:00.
Þökkum góðan dag í dag og sjáumst hress á morgun. |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 5 |