Topolinoleikarnir - samantekt.
Miðvikudagur, 10. mars 2010 22:15
Aðstæður voru allar eins og best getur verið á Topolinoleikunum sem fram fóru dagana 6.-7.mars. 

Að þessu sinni tóku 6 íslenskir krakkar þátt í Topolinoleikunum.

en það voru: Alexía Gestsdóttir (´96), Ólafsfirði;   Helga María Vilhjálmsdóttir (´95), SKRR;   Særós Óskarsdóttir (´95), SKRR;  Hjalti Þór Ísleifsson (´96), Breiðabliki,   Jakob Helgi Bjarnason (´95), Dalvík og Páll Ársæll (´95), SKRR.  Heildarfjöldi keppenda var 102 hjá stúlkum og 113 hjá drengjum og voru keppendur frá 44 þjóðlöndum

Fyrri daginn var keppt í svigi.  Brautirnar voru mjög þéttar og ef ein brautin hefði verið einu porti lengri þá hefði hún verið dæmd ólögleg.  Brautarlagning í sviginu vakti athygli margra þjálfara vegna þess að undanfarin ár hafa svig brautir á Topolinoleikunum verið miklu opnari og með lengra bili á milli beygja.  Hjá stelpunum hafnaði Helga María í 32.sæti.  Alexía var með nánast sama tíma og Helga í fyrri ferð en féll í þeirri síðari.  Særós krækti í fyrri ferð og fór því ekki í seinni ferð.  Hjá strákunum hafnaði Jakob Helgi í 7.sæti og náði 3 besta tímanum í seinni ferð.  Páll Ársæll lenti í 40.sæti en Hjalti Þór hætti keppni í fyrri ferð.

Seinni daginn var keppt í stórsvigi.  Í stórsviginu var viðhöfð sama regla og verið hefur á Topolino undanfarin ár um að 60 bestu eftir fyrri ferð fá að taka þátt í seinni ferðinni.  Hjá stúlkunum var það aðeins Helga María sem fékk að fara seinni ferðina og hafnaði hún í 50.sæti  Hjá strákunum fékk aðeins Jakob Helgi að fara seinni ferðina og var í 4.sæti eftir fyrri ferð.  Hann hafnaði svo í 5.sæti samanlagt í stórsviginu.

Jakob Helgi var aðeins 43/100 úr sekúndu samanlagt frá því að komast í verðlaunasæti í sviginu en aðeins eru gefin verðlaun fyrir 3 efstu sætin.  Í stórsviginu var Jakob Helgi 56/100 úr sekúndu frá því að komast í verðlaunasæti.  Í stórsviginu stóð Jakob sig best af öllum Norðurlandabúum en þarna voru 3 bestu strákarnir frá hverju af hinum Norðurlöndunum. Í sviginu var aðeins Norðmaðurinn Martin Fjellberg á undan honum.

Í heildarstigakeppni þjóðanna, þar sem talin eru stig úr bæði 11-12 ára flokki og 13-14 ára flokki,  hafnaði Ísland ásamt Þýskalandi í 16.sæti.  Ef aðeins væru talin þjóðastig í 13-14 ára flokki þá hefði Ísland hafnað í um 10.sætinu.  Þetta er besti árangur sem Ísland hefur náð á Topolinoleikunum í flokki 13-14 ára.

(frétt tekin af ski.is)

 

 
Hannað af Teikn á lofti | Vefstjóri