|
Sunnudagur, 07. mars 2010 22:23 |
|
Í dag, sunnudag 7. mars, var keppt í hefðbundinni göngu á Ólafsfirði. Gangan fór fram við erfiðar aðstæður en vindur gerði mótshöldurum erfitt fyrir.
Þetta varð því eina gangan sem fór fram um helgina en asahláka aðfafanótt laugardags og mikill vindur gerði það að verkum að ekki var hægt að keppa á föstudag og laugardag. Flytja þurfti mótið af hefðbundnu skíðasvæði Ólafsfirðinga og fór keppni dagsins fram á golfvellinum.
Sigurvegarar urðu: Jónína Kristjánsdóttir Ólafsfirði og Marinó Sigurstyeinsson Ólafsfirði í flokki 13-14 ára, Gunnar Birgisson Ulli í flokki 15-16 ára, Stefán Pálsson Ísafirðií 17-19 ára flokki, Elsa Guðrún Jónsdóttir í kvennaflokki og Brynjar Leó Kristinsson í karlaflokki. Samhliða bikarmóti fyrir 13 ára og eldri fór fram Meistaramót í flokki 11-12 ára. Þar voru krýnd meistarar Hekla Dögg Guðmundsdóttir Ísafirði og Hjörvar Sigurgeirsson Akureyri.
|