Warning: imagecreatefromjpeg() [function.imagecreatefromjpeg]: gd-jpeg: JPEG library reports unrecoverable error: in /data/www/skidi.is/plugins/content/joomslide.php on line 334

Warning: imagecreatefromjpeg() [function.imagecreatefromjpeg]: '/data/www/skidi.is/images/stories/Ganga/2009_2010/th_logo.jpg' is not a valid JPEG file in /data/www/skidi.is/plugins/content/joomslide.php on line 334

Warning: imagecopyresampled(): supplied argument is not a valid Image resource in /data/www/skidi.is/plugins/content/joomslide.php on line 351
Í spor Þórunnar Hyrnu
Fimmtudagur, 11. febrúar 2010 09:34
Laugardaginn 27. febrúar býðst konum kjörið tækifæri til að njóta góðrar útiveru og hollrar hreyfingar með því að skella sér í skíðagöngu í Hlíðarfjalli.

         Kvennaskíðagangan – Í spor Þórunnar Hyrnu – verður nú haldin í þriðja sinn. Sem fyrr verður hægt að velja um tvær vegalengdir, 3,5 og 7 km. Upphitun hefst klukkan 12.50 en hægt er að leggja af stað á bilinu 13.00 – 13.30 og gengið er án tímatöku. Þátttökugjald er kr. 1500, frítt er fyrir 14 ára og yngri. Skíðaleiga er á staðnum og einnig er hægt að láta smyrja skíðin gegn vægu gjaldi.

Skráning fer fram í gönguhúsi norðan Skíðastaða frá klukkan 12.00 eða á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

         Á miðri leið verður boðið upp á veitingar og þegar í mark er komið verður ýmislegt í boði, glæsileg útdráttarverðlan og fleira. Þetta er kjörið tækifæri fyrir mæðgur, vinkonur, saumaklúbba, vinnustaðahópa, hlaupahópa og fleiri að koma í fjallið og eiga skemmtilega stund saman.

 

th_logo
 
Hannað af Teikn á lofti | Vefstjóri