| Um næstu helgi verður stór helgi á Vetraríþróttahátíð ÍSÍ 2010. |
| Mánudagur, 08. febrúar 2010 20:57 | |||
|
Skíðagöngumót innanhús. Mjög skemmtilegur atburður verður á dagskrá VMÍ á laugardaginn kl. 13 en þá verður skíðagöngumót innanhús á Glerártorgi. Búin verður til rúmlega 30 metra löng og um þriggja metra breið sprettgöngubraut inni á torginu. Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og hvetjum við skíðaáhugafólk til að mæta og horfa á.
Athugið að búið er að breyta tímanum til kl. 13:00 (var áður 14:00)
Til viðbótar þessu og því sem verður að gerast í Hlíðarfjalli og á skautasvellinu verður snjóspyrna haldin í flóðlýsingu á tjörninni við skautasvellið á föstudagskvöldið kl. 20.00. Kl. 10 á laugardeginum opnar svo stórsýningin Vetrarsport 2010 í Boganum. Sýningin er opin frá kl. 10.00-17.00 á laugardag og 12.00-16.00 á sunnudag.
|
Hannað af Teikn á loftiVefstjóri








