Þegar kaupa á gönguskíði og tengdan búnað.
Föstudagur, 26. mars 2010 21:21
gongumadur Hér er smá fróðleikskorn frá Óla Bubba skíðagönguþjálfara um val á nýjum gönguskíðum og stöfum.
 
Skíðamót Íslands.
Föstudagur, 26. mars 2010 20:58

smi-logo Skíðamót Íslands hófst í dag kl. 17:00 með sprettgöngu í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði þar sem keppni í göngu fer fram. Alpagreinar fara hins vegar fram á skíðasvæði Dalvíkinga. Hægt verður að fylgjast með lifandi tímatöku á netinu í alpagreinum og einnig sýnir N4 beint frá mótinu. Hér er slóðin inn á heimasíðu mótsins þar sem allar upplýsingar um gang mála koma fram

http://www.skidalvik.is/si2010/

 
Tilkynning frá Andrésarandar nefndinni.
Miðvikudagur, 24. mars 2010 20:14

2010-merki Andrésarnefndin vill minna skíðafélög á að skráning stendur enn yfir á Andrésarandar leikana 2010. Vinsamlegast gangið frá skráningum hið fyrsta.  Minnum á linkinn Andrés 2010 hér til vinstri.

Hlökkum til að sjá ykkur öll.  Upplýsingar varðandi skráningu.

Nefndin.

 
SKA - Henson gallar fyrir Andrésarleikana
Miðvikudagur, 24. mars 2010 20:03

image001 Meðfylgjandi má sjá auglýsingu frá fatanefnd þar sem minnt er á SKA-íþróttagalla og húfur fyrir Andrésarleikana.


 
Skíðamót íslands 2010
Miðvikudagur, 24. mars 2010 09:06

smi-logo Eins og flestir vita er spennandi helgi framundan hjá skíðafólkinu okkar. Skíðamót Íslands verður sett í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík föstudaginn 26. mars kl. 20:30 Þá verður reyndar búið að keppa í sprettgöngu sem fram fer kl. 17:00 sama dag.  Alpagreinar fara fram á Dalvík en keppt verður í göngu á Ólafsfirði. Mótinu lýkur á mánudag, eftir samhliðasvig og boðgöngu. Dagskrá mótsins má sjá hér

Til gamans set ég hér inn link þar sem hægt er að sjá stigastöðu keppenda í bikarkeppni vetrarins eins og hún er í dag. Úrslit í bikarkeppni 17 ára og eldri ræðst ekki fyrr en að landsmóti loknu. Staðan í dag. Tinna Dagbjartsd. er með flest stig í fl. 17-19 ára og í kvennaflokki og Jón Viðar Þorvaldsson er með flest stig í karlaflokki. Gunnar Þór Halldórsson er annar í 17-19 ára aðeins 30 stigum á eftir fyrsta manni. Þannig að staðan er mjög spennandi og óskum við okkar fólki góðs gengis og fylgjumst stolt og ánægð með þeim næstu daga.

N4 stefnir að því að vera með beina útsendingu frá mótinu nánar síðar.

 
HEAD skíði, skór o.fl. frá Everest
Þriðjudagur, 23. mars 2010 22:50
Auglýsing  Pantanir
 
15-16 ára drengir úr SKA unnu liðabikar ski.
Þriðjudagur, 23. mars 2010 22:23

Meðfylgjandi má sjá flottar myndir sem Ísak Oddgeirsson tók á UMÍ á Sigló um liðna helgi og meðal annars myndina sem er hér með.   MYNDIR

  4456219987_0515ac3f77_s Myndin er af 15-16 ára SKA drengjum en þeir unnu liðabikarinn sem veittur er fyrir  samanlagðan stigafjölda á bikarmótum í vetur f.v. Almar, Arnór Dagur, Arnar Geir,  Hákon (heldur á bikarnum) Róbert, Magnús, Atli Rafn og Hallgrímur. Stúlkur í 13-14 ára SKA urðu í öðru sæti og einnig 15-16 ára stúlkur. SKRR unni stigabikarinn í öðrum flokkum.

 
Buch-Orkugangan
Mánudagur, 22. mars 2010 21:02

Hér koma upplýsingar um Buch-Orkugönguna sem verður 10. apríl.

Orkugangan gefur nú stig til Íslandsgöngu Skíðasambandsins.
Allar vegalengdir eru gengnar með hefðbundinni aðferð.

Auglýsing    Skráning

 
Ragnar G. Sigurgeirsson bikarmeistari í göngu í fl. 13-14 ára.
Mánudagur, 22. mars 2010 13:17

IMG_0458 Á unglingameistaramóti á Siglufirði lauk bikarkeppni unglinga í 13-14 ára og 15-16 ára í skíðagöngu. Bikarmeistarar í 13-14 ára eru Jónína Kristjánsdóttir Ólafsfirði og Ragnar G. Sigurgeirsson SKA og í flokki 15-16 ára eru Sigrún Auðardóttir Ísafirði og Gunnar Birgisson SKRR.

Önnur úrslit má nú sjá undir mót og úrslit hér til vinstri.

 
Róbert Ingi Tómasson bikarmeistari í alpagreinum í fl. 15-16 ára.
Mánudagur, 22. mars 2010 13:13
bikarmeistarar-unglingar Eins og fram kemur á www.ski.is  lauk bikarkeppni unglinga í  flokkum 13-14 ára og 15-16 ára í alpagreinum á unglingameistaramótinu á Siglufirði um liðna helgi. Bikarmeistarar í 15-16 ára flokki eru Freydís Halla Einarsdóttir SKRR og Róbert Ingi Tómasson SKA og í flokki 13-14 ára Thelma Rut Jóhannsdóttir Ísafirði og Jakob Helgi Bjarnason Dalvík. Bikarkeppni í eldri flokkum lýkur á skíðamóti Íslands um næstu helgi sem fram fer á Dalvík.
 
María þrefaldur unglingameistari í flokki 15-16 ára.
Sunnudagur, 21. mars 2010 20:19

Maria_Gudmundsdottir María "okkar" Guðmundsóttir varð unglingameistari í svigi í fl. 15-16 ára í dag. María vann einnig stórsvigið í gær og er því sigurvegari í alpatvíkeppni sömuleiðis. Róbert Ingi Tómasson varð annar i dag aðeins 0.19 á eftir fyrsta manni. Róbert varð einnig annar í alpatvíkeppni. Magnús Finnsson varð í 3. sæti í sviginu í dag og þriðji í alpatvíkeppni.

Bestu hamingjuóskir til ykkar allra.

Til gamans má geta þess að í 2. sæti í svigi stúlkna varð Erla Ásgerisdóttir en hún er Akureyringur í húð og hár (dóttir Geira Magg:) en keppir fyrir Breiðablik . 

Öll úrslit  sem borist hafa má sjá undir mót og úrslit hér til vinstri.

 

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Hannað af Teikn á lofti | Vefstjóri