|
Miðvikudagur, 31. mars 2010 09:55 |
|
Á morgun, fimmtudaginn 1. apríl, verður Coke mót í skíðagöngu í Hlíðarfjalli. Keppni hefst klukkan 13:00 og er gengið með hefðbundinni aðferð í eftirfarandi flokkum drengja og stúlkna:
8 ára og yngri 1 km
9-10 ára 1,5 km
11-12 ára 2,5 km
13-14 ára 3,5 km |
|
|
Umsóknir um styrki frá FUN. |
|
Þriðjudagur, 30. mars 2010 23:59 |
|
Fræðslu- og útbreiðslunefnd (FUN) SKÍ auglýsir eftir umsóknum um styrk(i).
Auglýsing Umsóknareyðublað |
|
Sigurgeir og Íris í SKA unnu bæði þrefalt í 17-19 ára flokki |
|
Þriðjudagur, 30. mars 2010 23:12 |
|
Skemmtileg umfjöllun er í Vikudegi í dag 30. mars um Skiðamót Íslands. Þar kemur m.a. fram að Sigurgeir Halldórsson SKA vann þrefalt í 17-19 ára flokki þ.e. hann vann svig, stórsvig og alpatvíkeppni sem er samanlagður árangur í alpagreinum í karlaflokki varð Sigurgeir fjórði í stórsvigi og þriðji í svigi . Íris Guðmundsdóttir vann einnig þrefalt í 17-19 ára flokki og hún sigraði einnig í stórsvigi og alpatvíkeppni í kvennaflokki.
|
|
Nánar...
|
|
Tinna Dagbjartsdóttir bikarmeistari SKI |
|
Þriðjudagur, 30. mars 2010 00:11 |
|
Eins og fram kemur á ski.is voru í dag krýndir bikarmeistarar í 17-19 ára flokkum og í kvenna og karla flokkum svo og í félagakeppninni. Tinna Dagbjartsdóttir SKA varð bikarmeistari í 17-19 ára flokki stúlkna og í kvennaflokki. SKA varð stigahæsta félagið í 17-19 ára stúlkna- og drengja flokkum og í kvenna og karlaflokkum.
Ekki er hægt að segja annað en að þetta sé frábær árangur hjá okkar skíðafólki og glæsileg niðurstaða eftir góðan árangur hjá þeim á Íslandsmótinu. Til hamingju öll sömun.
|
|
Nánar...
|
|
A og B sveit Akureyrar sigruðu í boðgöngu. |
|
Mánudagur, 29. mars 2010 20:00 |
Boðgöngu er lokið á Ólafsfirði. Keppt var við fínar aðstæður í Skeggjabrekku. Í karlaflokki varð A sveit Akureyrar nokkuð öruggur sigurvegari. Sveitina skipuðu þeir Andri Steindórsson, Vadim Gusev og Brynjar Leó Kristinsson. Mikil barátta var um annað sætið en að lokum náði B-sveit Akureyrar að vera 1-2 metrum á undan sveit SKRR. Í B-sveit Akureyrar voru þeir Sigurgeir Svavarsson, Helgi Heiðar Jóhannesson og Sindri Freyr Kristinsson. Til hamingju með góðan árangur.
|
|
María Guðmundsdóttir íslandsmeistari í svigi kvenna. |
|
Mánudagur, 29. mars 2010 15:37 |
|
María Guðmundsdóttir SKA varð íslandsmeistari í svigi kvenna á íslandsmeistaramótinu á Dalvík í dag. Í 2. sæti varð systir hennar Íris Guðmundsdóttir SKA. Þær systur skiptu semsagt á milli sín sviginu og stórsviginu, skemmtilegt. Sigurgeir Halldórsson SKA varð í 3. sæti í karlaflokki. Glæsilegur árangur hjá þeim öllum og óskum við þeim til hamingju.
Nánari úrslit má sjá HÉR.
|
|
Keppt í svigi í dag mánudag á Íslandsmótinu á Dalvík. |
|
Mánudagur, 29. mars 2010 10:05 |
|
Nú hefur veðrið gengið niður á Dalvík og ákveðið að keppt verði í svigi karla og kvenna. Skoðun kvenna hefst kl. 12:00 og hjá körlun 12:45. Eins og fram hefur komið er bara um seinni ferð að ræða hjá körlum þar sem hægt var að ljúka fyrri ferð hjá þeim í gær. Konunrnar byrja hins vegar á nýju móti og fara tvær ferðir.
Hvað göngukeppnina varðar þá verður tekin ákvörðun kl. 12:00 hvort keppni fer fram í göngu.
Samhliðasvig hefur verið fellt niður.
Lifandi tímataka |
|
Svigi á Íslandsmóti frestað vegna veðurs. |
|
Sunnudagur, 28. mars 2010 18:43 |
|
Aflýsa varð sviginu á íslandsmeistaramótinu á Dalvík í dag vegna óveðurs og allir urðu að drífa sig heim. Eftir að fyrri ferð karla lauk og tvær tilraunir höfðu verið gerðar með fyrri ferð kvenna varð að hætta keppni vegna hvassviðris.
Ný DAGSKRÁ fyrir mánudag hefur verið gefin út en þá á að keppa í svigi seinni ferð karla og báðar ferðir í kvennnaflokki. Samhliðasvig fer síðan fram strax þar á eftir. Svo er bara að vona að veðurguðirnir verði keppendum og öðrum hagstæðari á morgun. |
|
Vadim Gusev SKA íslandsmeistari í 10km göngu |
|
Laugardagur, 27. mars 2010 21:05 |
|
Vadim Gusev varð íslandsmeistari í 10km göngu karla í dag. Í 2. sæti varð Brynjar Leo Kristinsson í 4. sæti varð gamla kempan Sigurgeir Svavarsson og í því 6. engin annar en Ólafur H. Björnsson. Einnig var keppt í 10km hjá 17-19 ára og þar varð Sindri Freyr Kristinsson í 3. sæti.
Konurnar kepptu í 5km göngu og þar varð Veronika Lagun í 2. sæti.
Nánari úrslit má sjá HÉR. |
|
Andri Steindórsson íslandsmeistari í sprettgöngu. |
|
Laugardagur, 27. mars 2010 16:26 |
Andri Steindórsson varð íslandsmeistari í sprettgöngu 1 km. hefðb. aðferð sem lauk í gær í Ólafsfirði. í 2. sæti varð Vadim Gusev, 3. sæti Brynjar Leó Kristinsson og í 4 sæti Pavels Ribakovs. Allir þessir drengir keppa fyrir SKA og er þetta frábær árangur hjá þeim. Til hamingju. |
|
Íris Guðmundsdóttir íslandsmeistari í stórsvigi kvenna |
|
Laugardagur, 27. mars 2010 16:12 |
|
Íris Guðmundsdóttir varð íslandsmeistari í dag í stórsvigi á Íslandsmótinu sem fram fer á Dalvík . Í 2. sæti varð systir hennar María Guðmundsdóttir, í 3. sæti Katrín Kristjánsdóttir og í 4. sæti Halla Sif Guðmundsdóttir. Allar stúlkurnar eru frá Skíðafélagi Akureyrar og er þetta í einu orði sagt frábær árangur hjá okkar stúlkum og óskum við þeim innilega til hamingju. Í karlaflokki varð fremstur af SKA strákum Sigurgeir Halldórsson en hann varð fjórði í dag flott hjá honum. Nánari úrslit má sjá HÉR |
|
|
|