|
Starfsmannalisti fyrir Icelandair Cup mótið 9-11. apríl |
|
Fimmtudagur, 08. apríl 2010 21:57 |
|
Meðfylgjandi er starfsmannalisti fyrir FIS mótin nú um helgina. Þeir sem ekki eru á skrá en sjá sér hugsanlega fært að koma og hjálpa til við mótin, hvort sem það er við öll eða eitt, þá er öll aðstoð vel þegin. Fyrsta mótið af fjórum hefst á morgun kl. 14:00 Mæta þarf klukkustund fyrir start.
Vonumst til að sjá sem flestar hjálparhendur
Hér má sjá DAGSKRÁ mótsins. Takið eftir að tvö stórsvigsmót eru fyrirhuguð á laugardaginn.
Hægt verður að fylgjast með LIFANDI TÍMATÖKU
Með kveðju
Mótanefnd. |
|
|
Myndband frá Landsmóti 2010. |
|
Miðvikudagur, 07. apríl 2010 21:06 |
|
Hér kemur fyrri hluti af myndbandi frá Landsmóti á Dalvík og Ólafsfirði , ganga og stórsvig .
video : http://www.youtube.com/watch?v=VbibvukVq1o
Ljósmyndir . www.simnet.is/
Hér kemur svo seinni hlutinn http://www.youtube.com/watch?v=kVitF3jysT0
Hér eru tvær slóðir frá N4 en þeir gerðu skíðalandsmóti góð skil í þessari samantekt.
http://www.n4.is/tube/file/view/973/
http://www.n4.is/tube/file/view/972/1/
(Frétt tekin af www.ski.is) |
|
Miðvikudagur, 07. apríl 2010 20:48 |
|
Úrslit í Páskaeggjamóti sem Skíðafélag Akureyrar hélt annan í páskum í Hlíðarfjalli má sjá undir úrslit hér til vinstri. Á myndinni eru sigurvegarar dagsins sælir og glaðir með páskaeggin sín. Vonandi hafa þau runnið ljúflega niður með kaldri mjólk.
Til hamingju.
Arnar Ágúst, Katla Björg SKA, Arnar Birkir SKA, Jón Elí, Róbert Ingi SKA og Björn Inga SKA. |
|
Þriðjudagur, 06. apríl 2010 23:48 |
|
Skíðabúnaður sem ég fann á annan í páskum í vegkanti á Möðrudalsöræfum sem ég vill að komist til skila er í minni vörslu. Um er að ræða 2 hjálma o.fl Nánari uppl. í síma 8664789 Ólafur. |
|
Sunnudagur, 04. apríl 2010 17:17 |
|
Um 90 manns tóku þátt í páskatrimmi í dag í sól og hægum vindi. Flestir gengu 7 km. m/tímatöku og nokkru færri 3,5 km. m/tímatöku. Þá var einnig hægt að velja vegalengd og tíma að eigin vali og voru 29 aðilar sem tóku þeirri áskorun. Að göngu lokinni voru nokkrir dregnir út og fengu páskaegg í verðlaun og á endanum voru tvö heppin dregin út og fengu flug fyrir tvo frá Flugfélagi Íslands. Í móti sem þessu eru það ekki úrslitin sem skipta öllu máli og má sjá fólk á öllum aldri taka þátt og njóta góðrar útiveru í skemmtilegum félagsskap. En fyrir þá sem vilja þá er hægt að sjá tíma á úrslitasíðunni. |
|
Stóri Andrésarfundurinn mánud. 12. apríl |
|
Sunnudagur, 04. apríl 2010 15:34 |
|
Stóri Andrésar-fundurinn verður haldinn mánudaginn 12. apríl kl. 20 á kaffiteríunni í Íþróttahöllinni.
Farið verður yfir dagskrá mótsins og iðkenda SKA. Foreldrar, starfsmenn og aðrir velunnarar hvattir til að mæta. Foreldrar nýrra iðkenda sérstaklega velkomnir. Hjálpumst öll að við að undirbúa stærsta skíðamót landsins og eins og fram hefur komið eru þetta 35. Andrésarandarleikarnir.
Allir fá merki leikanna 2010 á fundinum.
Hlökkum til að sjá ykkur
Andrésarnenfdin |
|
Páskaeggjamót í samhliðasvigi |
|
Sunnudagur, 04. apríl 2010 15:29 |
|
Pákskaeggjamót sem halda átti í gær í Hlíðarfjalli en var frestað fer fram annan í páskum þ.e. á mánudaginn 5. apríl kl. 10:00 en þá er skráning og mótið hefst svo kl. 11:00
Allir að mæta:)
|
|
Borgarafundur miðvikud. 7. apríl |
|
Laugardagur, 03. apríl 2010 09:50 |
|
Borgarafundur um stöðu og rekstur íþróttafélaga á Akureyri.
ÍBA efnir til fundar um íþróttamál miðvikudaginn 7. apríl 2010 kl. 20.00 í Brekkuskóla.
|
|
Nánar...
|
|
FIS mót / Icelandair CUP 9. - 11. apríl í Hlíðarfjalli |
|
Laugardagur, 03. apríl 2010 09:43 |
|
FIS mót í alpagreinum verður haldið í Hlíðarfjalli daganna 9.-11. apríl nk. Keppt verður í svigi á föstudegi, stórsvigi á laugardegi og svigi á sunnudegi.
Dagskrá Boðun Icelandair Cup Schedule
Með skíðakveðju Mótanefnd Skíðafélags Akureyrar |
|
Fimmtudagur, 01. apríl 2010 17:20 |
Coke mót í skíðagöngu fór fram í dag og var keppt í flokkum 14 ára og yngri. Yngsti keppandinn í dag var aðeins þriggja ára og stóð sig vel þrátt fyrir norðan átt og snjókomu. Allir keppendur voru leystir út með gjöfum og veitingum frá Vífilfelli. Úrslitin má sjá á úrslitasíðunni. |
|
Miðvikudagur, 31. mars 2010 10:07 |
|
Á páskadag fer fram árlegt skíðatrimm við gönguhúsið í Hlíðarfjalli. Boðið er upp á tvær vegalengdir m/tímatöku og frjálsa vegalengd án tímatöku. Tímatakan hefst kl. 14:00 og verður hægt að skrá sig frá kl. 13:00. Verðlaun frá Flugfélagi Íslands og páskaegg verða dregin út kl. 15:00. |
|
|
|