Starfsmannamál á Andrésar andar leikunum 2010
Miðvikudagur, 14. apríl 2010 11:31

andreslogo2010 Hildigunnur Svavarsdóttir sér um starfsmannamál sem lúta að Andrésarandarleikunum 2010. því viljum við benda foreldrum og öðrum velunnurum SKA að hafa samband við hana ef þið hafið áhuga og tök á að hjálpa til við leikana. Eins og við öll vitum eru mörg verk sem þarf að sjá um eins og t.d. portavarsla, brautarvinnsla, afhending númera, afhending glaðninga, tímataka, liðsstjórn, SJOPPAN og margt fleira. Endilega bjóðið ykkur fram þetta er mjög skemmtilegt og svo er næstum búið að lofa okkur góðu veðri....

Allavega Hildigunnur hefur netf: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og gsm: 860-0588

Hlökkum til að sjá sem flesta

Mótanefnd og Andrésarnefnd.

 
Afreksíþróttasvið í skíðum við Borgarholtsskóla
Þriðjudagur, 13. apríl 2010 21:44
Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið í skíðum haustið 2010.
Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er. Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Kynningarfundur verður í Borgarholtsskóla miðvikudaginn 14. apríl kl. 17:30.
Nánar...
 
Akureyrarmót í hefðbundinni göngu
Þriðjudagur, 13. apríl 2010 21:39
Akureyrarmóti í hefðbundinni göngu sem frestað var fyrr í vetur verður haldið miðvikudaginn 14. apríl í Hlíðarfjalli. Mótið hefst kl. 17.30 og verður hópstart. Keppendur mæti tímanlega til að skrá sig. Keppt er í öllum flokkum.
 
Iris fékk styrk úr afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ
Þriðjudagur, 13. apríl 2010 18:22

Sjóðsstjórn Afrekskvennasjóðs hefur farið yfir umsóknir vegna fimmtu úthlutunar úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ. Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður með framlagi bankans árið 2007. Markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri.

Íris Guðmundsdóttir SKA fékk styrk úr sjóðunum að upphæð 250.000 krónur vegna æfinga og keppni þennan vetur. Á keppnistímabilinu bar hæst þátttaka á Ólympíuleikunum í Vancouver þar sem Íris er eina konan sem tók þátt fyrir Íslands hönd. Íris vann sér keppnisrétt í risasvigi, stórsvigi og svigi. Undanfarin ár hefur Íris stundað nám og æfingar við skíðamenntaskóla í Geilo í Noregi.

Nánar má lesa um þessa frétt á ski.is

 
Íris og María gera það gott í Noregi.
Þriðjudagur, 13. apríl 2010 18:05

ris_Gumundsdttir   Maria_Gudmundsdottir  

Íris og María Guðmundsdætur eru um þessar mundir að keppa á mjög mörgum mótum í Noregi. Þær keppa á 12 mótum á 14 dögum sem verður að kallast ágætis törn. Að sögn eru þær í góðum gír, hörku góðu formi og til í slaginn.

Nánar...
 
Ráslistar komnir inn á Andrésarsíðuna.
Mánudagur, 12. apríl 2010 19:57
Klikkið á Ráslisti leikanna efst til hægri á Andrésar andar borðanum.
 
Jakob Helgi Bjarnason stóð sig vel á WHISTLER CUP í Kanada
Mánudagur, 12. apríl 2010 10:27
L2RhdGEvd3d3L3NraS5pcy9pbWFnZXMvc3Rvcmllcy9qYWtvYndpc2hsZXIuanBn Jakob Helgi (1995) Skíðafélagi Dalvíkur  sigraði svigmót á Whistler Cup í Kanada síðastliðinn laugardag. þetta er án efa einn besti árangur íslendings í alpagreinum hjá svo ungum keppanda. Nánari úrslit má sjá HÉR
 
Buch-Orkugangan 2010
Laugardagur, 10. apríl 2010 23:35
Brynjar_Leo_Kristinsson Buch-Orkugangan 2010 var haldin í dag, laugardag. Þetta er lengsta skíðaganga landsins eða 60 km. Einnig er boðið upp á styttri vegalengdir. Þetta er í fyrsta skipti sem gangan er haldin sameiginlega af Mývetningum og Húsvíkingum og er hún hluti af Íslandsgöngunni. 60 km gangan byrjar við Kröflu og endar á Rekjaheiði við Húsavík. Í ár gengu rúmlega 30 manns þessa vegalengd. Fyrstur í mark var Brynjar Leó Kristinsson frá Akureyri á tímanum 3.24.06 , annar varð Sigurbjörn Þorgeirsson Ólafsfirði og þriðji Andri Steindórsson Akureyri. Fyrst kvenna varð Guðrún Ólöf Pálsdóttir Siglufirði á tímanum 5.15.42, önnur Eyrún Björnsdóttir Mývatnssveit og þriðja Jónína Snæfríður Einarsdóttir Laxárvirkjun. Nánari úrslit, flokkaúrslit og úrslit í styttri vegalengdunum er að finna á heimasíðu Völsungs.
 
Icelandair Cup úrslit, stórsvig.
Laugardagur, 10. apríl 2010 15:05

Karen_Sigurbjrsdttir Karen Sigurbjörnsdóttir SKA stóð sig vel í stórsviginu í dag hún varð í  2. sæti sem er frábær árangur. Karen hefur ekki alveg náð sér á strik í vetur og er búin að eiga í meiðslum sem hafa sett strik í reikninginn hjá henni. Til hamingju Karen. Fleiri SKA stúlkur stóðu sig einnig ágætlega Elise Marie varð í 9. sæti, Silja Hrönn í 10. sæti, Matthildur Rún í 11. sæti og Sigrún Stella í því 12.

Af strákunum okkar í SKA varð Jón Viðar í 7. sæti og Magnús Finnsson í 11. sæti, Róbert Ingi í því 12, Björn í 13. sæti og Arnar Geir í 14. sæti. Sigurgeir Halldórsson náði ekki að klára seinni ferð en átti fína fyrri verð og var með 3. besta tímann.  

Seinna stórsviginu var frestað þar sem færið var orðið mjög slæmt. Keppni heldur áfram á morgun en þá verður keppt í svigi. Sjá dagskrá neðar á síðunni.

 
Icelandair Cup. Úrslit í svigi dagsins.
Föstudagur, 09. apríl 2010 19:31

Tinna_Dagbjartsdttir Þá eru ljós úrslitin í sviginu í dag sem var að ljúka. Tinna Dagbjartsdóttir sem var með besta tímann eftir fyrri ferð varð í öðru sæti þar sem Elín Jónsdóttir frá Ísafirði náði að skjótast fram fyrir hana og náði fyrsta sætinu. Samt sem áður góður árangur hjá Tinnu og óskum við henni til hamingju.  Berglind Eik Ólafsdóttir náði 12. sæti og er það mjög gott þar sem hún er ekki nema 16 ára.

 

Sigurgeir_Halldrsson  Í karlaflokki sigraði Björgvin Björgvinsson en fyrstur af SKA keppendum varð Sigurgeir Halldórsson en hann varð í 5 sæti flott hjá honum. Magnús Finnsson varð í 10. sæti og Björn Ingason í því 11.

Nánari úrslit má sjá undir mót og úrslit hér til vinstri.

 

 
Fundur 12. apríl og mótsgjöld SKA iðkenda á Andrés 2010.
Fimmtudagur, 08. apríl 2010 23:33

Um leið og við minnum á Stóra Andrésarfundinn mánudaginn 12. apríl kl. 20.00 í Íþróttahöllinni  minnum við á að mótsgjöld v/Andrésarleikanna 2010 fyrir iðkendur SKA eru sem hér segir.

Nánar...
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Hannað af Teikn á lofti | Vefstjóri