|
Keppni hefst kl. 13:30 í svigi og stórsvigi. |
|
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 13:17 |
|
Nú fer að hefjast keppni kl. 13:30 í flokkum 8 ára, 11 ára og 10 ára á Andrés. Öll úrslit eru komin inn fyrir fyrri hluta dagsins. Veðrið leikur enn við okkur, fánar liggja niðri, ekki bærist hár á höfði skíðafólks og allstaðar má sjá sólbjört og brosandi andlit. |
|
|
Skoðið úrslitin undir Andrés 2010/úrslit |
|
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 11:55 |
|
Nú er lokið keppni í fl. 13-14 ára í st.svigi og 12 ára í svigi á Andrésarleikunum. Einnig er að ljúka keppni í fl. 9 ára í svigi í Hjallabraut. Dagskrá fyrir 7 ára krakka í Hólabraut sem hófst kl.11.00 gengur vel og allir sælir og glaðir.
Úrslit koma von bráðar. Allt gengur að óskum og veðrið leikur við keppendur og aðra gesti í fjallinu. |
|
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 10:24 |
|
Fyrsti hópur verður ræstur út kl. 11 og verða úrslit sett hinn hér á síðunni um leið og þau berast. |
|
35. Andrésarandar leikarnir að hefjast í Hlíðarfjalli. |
|
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 08:53 |
|
Nú eru 35. Andrésarandarleikarnir að hefjast í Hlíðarfjalli í blíðskaparveðri -6° frost, sól og nánast logn. Aðstæður gætu ekki verið betri. Keppni hefst núna kl. 9.00 með stórsvigi í flokki 13-14 ára. kl. 10. hefst svo keppni í svigi hjá 12 ára og einnig í 9. ára flokki. Gangan hefst svo kl. 11.00 Minni á nánari dagskrá undir Andrés 2010.
Góðar stundir |
|
13-14 ára hópurinn í æfingabúðum. |
|
Miðvikudagur, 21. apríl 2010 09:33 |
|
Nú eru 45 krakkar af öllu landinu á aldrinum 13-14 ára í æfingabúðum í Hlíðarfjalli. Þetta er í annað sinn sem SKA býður upp á þessar æfingabúðir í vikunni fyrir Andrés en þær voru fyrst í fyrra við mjög góðar undirtektir. Dagbjartur Halldórsson hefur haft veg og vanda af skipulagningunni og tekist vel til. Í gær voru krakkarnir á svig- og st.svigs æfingum frá 9 - 15, skelltu sér svo í Keilu og bæjarrölt. Þau eru svo í góðu yfirlæti á Hótel KEA hjá Sibba sem sér þeim fyrir mat og gistingu eins og þeim einum er lagið á KEA-Hotels. Í dag eru svo krakkarnir á æfingu til kl. 14. í fjallinu. Mjög góð stemmning var í hópnum í gær og mikil gleði með ferðina. |
|
Starfsmannalisti á Andrésarleikunum |
|
Mánudagur, 19. apríl 2010 16:12 |
|
Kæru starfsmenn á Andrés 2010
Þá er Uppfærður starfsmannalisti miðvikudag. skjal. Vek athygli ykkar á því að það eru 4 flipar í þessu skjali. Skjalið sem opnast gefur yfirlit yfir heildarlista starfsmanna, svo er flipi sem heitir „Liðsstjórar“ annar flipi sem heitir „Sjoppan“ og einn sem heitir „Undanfarar“.
Nokkuð vel hefur gengið að skipta niður vinnunni vegna Andrésar leikanna og erum við þakklát fyrir það.
ATH. Þeir starfsmenn á Andrésar Andar leikunum sem ekki eru með árskort í lyfturnar og þurfa að komast upp í Strýtu geta fengið lyftukort. Þá er bara að gefa sig fram í afgreiðslunni í Hlíðarfjalli en þau eru með starfsmannalistann þar.
|
|
Nánar...
|
|
Skemmtidagskrá fyrir SKA iðkendur á Andrés. |
|
Föstudagur, 16. apríl 2010 21:59 |
Meðfylgjandi er skemmtidagskrá fyrir iðkendur, systkini og foreldra, Skíðafélags Akureyrar á Andrés 2010. Við verðum jú líka að skemmta okkur þó svo að við gistum ekki saman. Því hvetjum við ykkur krakkar til að taka fullan þátt í þessari fínu dagskrá sem barna- og unglinganefnd býður upp á. |
|
Skíðafatnaður (2011) fyrir SKA iðkendur. |
|
Fimmtudagur, 15. apríl 2010 22:10 |
|
Fatanefnd SKA ætlar að standa fyrir sölu á úlpum og snjóbuxum ( með rennilás á hliðunum uppúr og niðurúr) fyrir næsta vetur. Valin hafa verið föt frá Icepeak eins og síðast. Fjalar er umboðsmaður þessa fatnaðar og verður fólki innan handar ef það hefur spurningar varðandi gæði og annað slíkt.
|
|
Nánar...
|
|
Fleiri fréttir af Írisi og Maríu. |
|
Fimmtudagur, 15. apríl 2010 20:10 |
|
Iris og María halda áfram ad gera góða hluti i Noregi.
Iris og Maria kepptu i svigi i gær, miðvikudag og nádu mjög gódum árangri gerðu sína bestu svig punkta a ferlinum. Iris vard i 11. sæti og gerði 36 punkta og Maria varð í 13. sæti og gerði 38 punkta. þess má geta að allar bestu skíðakonur Noregs voru á meðal keppenda.
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 15. apríl 2010 20:04 |
|
Andrésarskólanum lauk í gær og voru það 30 krakkar sem tóku þátt í leikjabraut og fengu svo verðlaunapening um hálsinn að degi loknum. Það voru ánægð og stolt börn sem fóru heim með foreldrum sínum með stórt bros á vör. Við þökkum fyrir veturinn. MYND af hópnum.
Anna Sif og Stefanía |
|
Göngubrautir á Andrésar andar leikunum. |
|
Fimmtudagur, 15. apríl 2010 19:57 |
|
Kort af skíðagöngubrautum sem keppt verður í á Andrés 1000 m 1500m. 2000m. 2500 m og marksvæðið. Einnig boðgöngubraut 9-10 ára og boðgöngubraut 11-14 ára.
|
|
|
|