Keppni hafin í dag laugardag.
Laugardagur, 24. apríl 2010 10:29

Þá er keppni hafin á Andrésarandar leikunum í dag laugardag. Veðrið leikur viðokkur glampandi sól, logn og við frostmark. Fyrri ferð er lokið hjá 11 ára í stórsviginu og seinni ferð hafin. Fyrri ferð er einnig lokið í sviginu hjá 13-14 ára. Í Andrésarbrekkunni er einnig hafin keppni og leikjabraut hjá 7 ára í Ævintýraleiðinni.

 
Happdrættis-vinningar
Föstudagur, 23. apríl 2010 22:26

Á verðlaunaafhendingunni fyrr í kvöld föstudagskvöld, voru eftirfarandi númer dregin út í happadrætti Andrésar andar:

5 gjafabréf frá Útilíf og Cintamani : nr. 7907, 7961, 7399, 7743, 7814.

4 gjafabréf á 12 vikna áskrift að Andrésarandarblöðum frá Eddu:  nr.  7424, 7896, 7984, 7964, 8069.

Vinninga er hægt að vitja á verðlaunaafhendingu á laugardag hjá Óskari í ræðupúltinu.

Til hamingju vinningshafar og allir að muna að taka happdrættismiðana með á verðlaunaafhendinguna á laugardag.

 
Lokadagur á Andrés á morgun laugardag.
Föstudagur, 23. apríl 2010 20:08

Um leið og við óskum Andrésarmeisturum dagsins til hamingju svo og öðrum keppendum fyrir góða keppni  er rétt að minnast á að veðurspáin á morgun er ekki síðri en veðrið var í dag. 2°c hiti, S-A 3m á sek og glampandi sól. Nú er um að gera að muna eftir sólvörninni. 

Keppni hefst á morgun kl. 9:00 með keppni í svigi hjá 13-14 ára og kl. 10 keppa 7 ára stúlkur í leikjabraut, 7 ára drengir í stórsvigi og 11 ára einnig í stórsvigi. Gangan hefst svo kl. 11.00 með keppni hjá 8 ára og yngri í þrautabraut og 11.45 9-14 ára allir í boðgöngu.

Verðlaunaafhending og mótsslit verða svo í íþróttahöll kl. 15:00.

Þökkum góðan dag í dag og sjáumst hress á morgun.

 
Starfsmannalisti laugardag.
Föstudagur, 23. apríl 2010 18:08

Þökkum starfsfólki fyrir frábæran dag í fjallinu. Meðfylgjandi er starfsmannalistinn fyrir morgundaginn. Brautarstarfsmenn, ræsar og markstjórar eiga að mæta klukkan 06:30  í fyrramálið. Aðrir samkvæmt plani. Minni svo á frágang eftir lok keppni á morgun - margar hendur vinna létt verk. Sjáumst hress :-)

 
Verðlaunaafhending í kvöld kl. 19:30.
Föstudagur, 23. apríl 2010 13:03

gongustrakar skidastelpa skidastrakur

 

 

 

Minnum á tímasetningu á verðlaunaafhendingunni í kvöld 19:30.

Gunni og Felix mæta á svæðið og minnum  enn og aftur á Happdrættið munið eftir miðunum ykkar.

 
Úrslit dagsins komin inn.
Föstudagur, 23. apríl 2010 12:51
 Þá eru fyrstu úrslit dagsins komin á úrslitasíðuna. Það eru úrslit í fl. 8 og 9 ára í stórsvigi.
Nú eru komin inn úrslit í stórsvigi 12 ára stúlkur og drengir.
Nú eru komin úrslit í 7, 8 og 10 ára og síðast en ekki síst úrslit í Stjörnuflokki.
Gangan er einnig komin með sín úrslit.
 
Annar keppnisdagur á Andrés í glampandi sól.
Föstudagur, 23. apríl 2010 10:25
andresond Þá er að hefjast keppni á öðrum degi 35. Andrésarandar leikanna  í Hlíðarfjalli. Kl. 10 byrja krakkarnir í Stjörnuflokknum 7-14 ára í stórsvigi í Andrésarbrekku. Í Stjörnuflokk eru  5 keppendur en það eru krakkar sem eru hreyfihamlaðir eða  eiga við fötlun að etja. þetta eer í annað sinn sem þessi flokkur tekur þátt á leikunum. kl. 10.15 keppa svo 8 ára krakkar í stórsvigi í sömu brekku, 9 ára byrja einnig kl. 10 í st.svigi í norðurbakka. Munið að öll dagskráin en undir Dagskrá í Andrésarflipanum hér að ofan.Veðrið leikur við keppendur og annað skíðafólk í dag eins og í gær og allt gengur að óskum enda ekki annað hægt þegar veðurguðirnir eru okkur svona hliðhollir. Óskum andrésarmeisturum gærdagsins til hamingju svo og öðrum keppendum fyrir drengilega keppni í alla staði. Vonandi eiga alir góðan dag í dag og við minnum á að úrslit verða sett inn um leið og þau berast.
 
Happdrættisvinningar
Föstudagur, 23. apríl 2010 01:07

Á verðlaunaafhendingunni fyrr í kvöld (fimmtudgskvöld) voru eftirfarandi númer dregin út í happadrætti Andrésar andar:

5 gjafabréf frá Útilíf: nr. 7624, 7968,  7447, 7514, 7772.

4 gjafabréf á 12 vikna áskrift að Andrésarandarblöðum: nr.  7651, 7686, 7425, 7743.

Vinninga er hægt að vitja á verðlaunaafhendingu á föstudagskvöldið hjá Óskari í ræðupúltinu.

Til hamingju vinningshafar og allir að muna að taka happdrættismiðana með á kvöldin.

 
Breytt úrslit í göngu
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 18:17
Rétt úrslit úr göngunni eru komin á úrslitasíðuna.  Vegna mistaka þá voru lesin upp röng úrslit upp í fjalli í dag sem því miður hafði m.a. áhrif á verðlaunasæti í tveim flokkum.  Eru viðeigandi aðilar beðnir afsökunar á þessu.
 
Starfsmannalisti fyrir föstudag.
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 18:03
Þökkum öllu starfsfólki fyrir frábært starf í fjallinu í dag - allt gekk með eindæmum vel og allir glaðir. Meðfylgjandi er starfsmannalistinn fyrir morgundaginn. Athugið brautarstarfsmenn, ræsar og markstjórar í Norðurbakka og Andrésarbrekku eiga að mæta klukkan 7  í fyrramálið. Nóg að brautarstarfsmenn, ræsar og markstjórar í Suðurbakka mæti klukkan 8 (velkomnir fyrr ef þeir vilja :-)
 
Keppni lokið í alpagreinum í dag.
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 15:32

Þá er keppni lokið í dag fimmtudag á Andrésarandar leikunum. 11 ára keppendur voru að ljúka keppni í svigi og 10 ára drengir í stórsvigi. 8 ára krakkarnir eru einnig að ljúka sinni keppni í Andrésarbrekku.

Minnum á verðlaunaafhendingu sem hefst í Íþróttahöllinni kl. 20.00 í kvöld. 

Úrslit dagsins liggja fyrir  á úrslitasíðunni.

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Hannað af Teikn á lofti | Vefstjóri