|
Æfingabúðir (13+) á vegum SKA |
|
Fimmtudagur, 29. apríl 2010 23:39 |
|
Nú um mánaðarmótin er formlegum æfingum lokið á þessum skíðavetri. Í ljósi aðstæðna í Hlíðarfjalli þá hefur Skíðafélagið ákveðið að bjóða upp á æfingar fyrir 13 ára og eldri í maí og hefja þannig undirbúning fyrir næsta vetur. Fyrirhugað er að æfa í tvær vikur og byrja 3 maí. Fyrri vikan verður í formi æfingabúða þar sem æft verður frá kl. 9 til 14. Seinni vikuna verður boðið upp á tveggja tíma æfingar, annars vegar frá 14 – 16 hins vegar frá 16-18. Það gæti þurft að vinna við brekkurnar t.d. salta ef hitnar í veðri og þá munum við leita til foreldra til að aðstoða, biðjum þá sem hafa aðstöðu til þess að taka vel í það.
Að lokum viljum við í Alpagreinanefnd SKA þakka fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum vetri og hlökkum til að sjá ykkur öll í brekkunum næsta vetur.
Gleðilegt sumar
Alpagreinanefnd. |
|
|
Fimmtudagur, 29. apríl 2010 23:32 |
|
Eins og fram hefur komið verður aðalfundur SKA haldinn mánudaginn 10. maí 2010. Á þeim fundi verður kosið í stjórn og nefndir. Mikilvægt er að tryggja nýliðun í þessum nefndum og eru áhugasamir hvattir til þess að gefa kost á sér í starfið á vegum SKA. Ljóst er að breytingar verða á stjórn SKA og vantar til að mynda formann, gjaldkera og meðstjórnanda í stjórn SKA. Áhugasamir eru hvattir til þess að hafa samband við Hildigunni í síma 8600588 eða netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Allar ábendingar eru vel þegnar og endilega verið með :-) Sjáumst hress á aðalfundinum
Stjórnin. |
|
Akureyrarmót stórsvig 13 ára + |
|
Fimmtudagur, 29. apríl 2010 20:05 |
|
Á morgun föstudag á að gera eina tilraun enn til að halda Akureyrarmót í stórsvigi fyrir 13 ára og eldri. Vegna veðurs hefur þurft að fresta mótinu þrisvar sinnum en nú er veðurútlit mjög gott og því ástæða til að skella mótinu á. Mótið hefst kl. 18:00 þar sem opið er í fjallinu til kl. 21:00.
Allir að mæta. |
|
Myndir frá Andrés - Skíðaganga |
|
Miðvikudagur, 28. apríl 2010 23:26 |
|
Skíðafélagið er með myndasíðu frá skíðagönguatburðum inni á skidi.123.is. Nú eru komnar þar myndir af Andrésarleikunum. Þær er að finna HÉR. Einnig er að finna þar eldri myndir meðal annars frá fyrri Andrésarleikum.
Flottar myndir - flott veður - flottir krakkar! |
|
Aðalfundur Skíðafélags Akureyrar |
|
Miðvikudagur, 28. apríl 2010 19:47 |
|
Aðalfundur
Aðalfundur Skíðafélags Akureyrar verður haldinn í kaffiteríu íþróttahallarinnar
mánudaginn 10. maí kl. 20:00
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn Skíðafélags Akureyrar.
Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4
|
|
Síðasta tækifærið til að fara á skíði í vetur. |
|
Miðvikudagur, 28. apríl 2010 19:34 |
|
Síðasta skíðahelgin: Opið verður í Hlíðarfjalli föstudag kl. 13-21, laug 9-15 og sun 9-15. Nægur snjór er í öllum brekkum og veðurútlit mjög gott. Allir velkomnir á skíði og njóta útiverunnar í frábæru snjóhvítu landslagi, langt frá eldgosum og ösku. |
|
Myndir frá 35. Andrésarandar leikunum. |
|
Þriðjudagur, 27. apríl 2010 21:27 |
Á meðfylgjandi slóð má sjá frábærar myndir af Andrésarleikunum 2010 sem Benedikt pabbi Helgu 11.ára hjá SKA tók á meðan á leikunum stóð.
|
|
Þriðjudagur, 27. apríl 2010 21:07 |
|
1.mai nk. á Ísafirði fer Fossavatnsgangan fram. Smellið á linkinn hér á eftir til að fræðast meira um hana. Fossavatnsgangan |
|
Skíðafatnaður 2010-2011. SKA |
|
Sunnudagur, 25. apríl 2010 15:02 |
|
Minnum á að síðasti dagur til að panta úlpur og snjóbuxur fyrir næsta vetur er í dag mánudag 26. apríl (sjá augl dags. 15. apríl hér á síðunni) Við erum að reyna að ná verði á úlpunum niður í ca 12-15 þús með auglýsingum og buxunum niður í 10-12 þús. en lofum engu.
Pantanir má senda á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Stærðartafla
Með kveðju fatanefnd SKA
Nína og Hjördís |
|
35. Andrésarandar leikunum lokið. |
|
Laugardagur, 24. apríl 2010 20:32 |
Þá er Andrés lokið þetta árið. Mótshaldarar eru í sjöunda himni yfir því hversu allt gekk vel og senda bestu þakkir til allra sem hjálpuðu til. Starfsmenn unnu sem einn maður frá upphafi til enda og sannaðist máltækið sem við höfum notað svo mikið í vetur "margar hendur vinna létt verk" Ekki er því síður að þakka hversu veðrið var gott alla leikana og eflaust einnig þess vegna mátti sjá litil brosandi andlit hvert sem litið var í Hlíðarfjalli. N4 var með skemmtilega útsendinu í gær föstudag þar sem spjallað var við hressa keppendur og greinilega mátti sjá og heyra að ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega.
Nú þegar keppendur og aðrir gestir halda heim á leið og mótshaldarar komast í langþráða sturtu og kannski smá blund er við hæfi að óska öllum góðrar heimferðar og við hlökkum til að sjá ykkur öll að ári á 36. Andrésarleikunum.
Móta- og Andrésarnefnd. |
|
Lokahóf fyrir starfsmenn Andrés. |
|
Laugardagur, 24. apríl 2010 10:43 |
|
Lokahóf fyrir starfsmenn Andrésarleikanna og foreldra barna í SKA í kvöld kl. 21.00 á Pósthúsbarnum. Allir sem starfað hafa við leikana og hafa náð 20 árum eru velkomnir. Léttar veitingar í boði.
Aðrir starfsmenn þ.e. 15-20 ára er boðið á Bryggjuna í Pizzuveislu kl. 21:00 í kvöld.
Móta- og andrésarnefnd.
Lokahóf |
|
|
|